Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1970, Qupperneq 6

Skinfaxi - 01.06.1970, Qupperneq 6
„Miðum að stóru takmarki“ Guðjón Ingimundarsson hefur setið í stjórn Ungmennasambands Skagafjarðar síðan 1942, þar af síðustu 26 árin sem formaður. Guð- jón er jafnframt varafonmaður UMFÍ. — Eruð þið ekki í hátíðarskapi vegna sextugsafmælis héraðssambandsins, Guð- jón? — Jú, að sjálfsögðu. Afmælisins var minnzt á héraðsþingi okkar í vor, en menn voru sammála um að það væri ráðlegast að halda upp á það með því að búa okkur sem bezt undir það stór- verkefni, sem við höfum tekið að okkur að sjá um á næsta ári, — 14. landsmót UMFÍ. — Eru ekki auk þess mörg verkefni að vinna að innan héraðsins? — Jú, hér eru vissulega mörg við- fangsefni, sem héraðssambandið leitast við að vinna, þótt fjárskortur sé okkur fjötur um fót. Stefán Petersen hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra undanfar- in ár og leyst það vel af hendi. I vetur iieimsótti hann félögin í héraðinu, kom á fundi þeirra, leiðbeindi um ýmis fé- lagsleg atriði og sýndi kvikmyndir. Sam- bandið hefur jafnan leitast við að miðla félögunum íþróttakennslu og við höfum kennara 2—4 mánuði á sumrin. Ingi- mundur Ingimundarson íþróttakennari annast það starf í sumar eins og undan- farin ár. Starf hans hefur haft mikla þýð- ingu, en mikil þörf væri á leiðbeinendum að auki hjá hinum ýmsu félögum. Við höfum ætíð leitazt við að lræta úr því með Guðjón Ingimundarson, form. UMSS, stend- ur hér á bakka sundlaugarinnar, þar sem hann hefur unnið að sundkennslu um langt árabil. því að fá reynda íþróttamenn til að kenna í stuttan tíma, einkum í knattspymu og sundi, og hefur það gefizt vel, en er auð- vitað kostnaðarsamt. ■—- Er ekki talsvert félagsstarf í ung- mennafélögunum auk íþróttastarfsins? — Jú, íþróttirnar eru aðeins einn þátt- ur í starfinu, en í félögunum er unnið að mörgu öðru, sem minna ber á og minna er haldið á lofti. Ungmennafé- lagar hafa t.d. lagt fram mikla sjálfboða- vinnu og fjármuni við byggingu félags- heimila. Ungmennafélögin halda víða uppi fjölbreyttu félagslífi í sveitunum og eru víða sterkasta aflið í þeim málum. Landgræðslustarfið er þegar komið vel af stað og margt fleira mætti nefna. — Hvað stendur starfinu helzt fyrir þrifum? — Þar mætti nefna allmörg atriði. Héraðið er í rauninni mjög fátækt að íþróttamannvirkjum. Sérstaklega skortir 6 SKIMFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.