Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1970, Page 16

Skinfaxi - 01.06.1970, Page 16
Tvíelfd hátíð á 100 ára afmælinu Rætt við Helga Rafn Traustason, formann afmælisnefndar Sauðárkróks Ef Árni klénsmiður Árnason mætti rísa úr gröf sinni og skyggnast yfir Sauðár- krókskaupstað í hátíðarbúningi næsta sumar, sæi hann ótrúlega breytingu frá því hann settist hér að á malarkambi við sjóinn árið 1871. Næsta sumar ætla Sauðárkróksbúar að minnast 100 ára byggðarafmælis staðar- ins. Það fer vel á því, að þeir ætla að láta afmælishátíðahöldin haldast í hend- ur við landsmót UMFI, þannig að úr verður hátíðar-„sæluvika“, að vísu með öðrum blæ en hin klassíska sæluvika Skagfirðinga. Formaður afmælisnefndar bæjarins er Helgi Rafn Traustason, en hann er einnig gjaldkeri Ungmennasam- bands Skagafjarðar. — Hvernig barst þessi fyrsti land- nemi hingað, Helgi? — Hér á Sauðárkróki hafði um allangt skeið verið löggilt verzlunarhöfn áður en byggð hófst. Árni klénsmiður hefur sennilega verið svo framsýnn að sjá fyrir að hér hlyti byggð að eflast með tím- anum, og einnig hefur verið hagkvæmt fyrir slíkan handverksmann að vera stað- settur þar sem margir komu í viðskipta- erindum. — Hvernig verður afmælis byggðar- innar minnzt? — Aðalafmælishátíðin verður helgina fyrir landsmótið. Dagskráin er ekki full- mótuð ennþá, en reynt verður að hafa hana fjölbreytta og skemmtilega. Við Sauðárkrókskaupstað - ur hefur stækkað all- mikið á siðustu árum og: atvinnulíf eflzt. (Ljósm.: Stefán Petersen). 16 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.