Skinfaxi - 01.06.1970, Qupperneq 22
FRA STARFSEMIUN GMENN AFELAGANNA
Ungmennafélagið Víðir í Víðidal er stofn-
að 26. ianúar 1930 og varð því 40 ára á
þessu ári.
Stofnfundur félagsins var haldinn í Víði-
dalstungu og voru fundarmenn 15 talsins.
Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þessir menn:
Formaður, Aðalsteinn Teitsson, féhirðir,
Óskar B. Teitsson, ritari Arinbjörn Árnason.
Áður hafði starfað ungmennafélag í Víði-
dal. Mun það hafa verið stofnað 1908 og
aðalhvatamaður að stofnun þess félags var
Björn H. Jónsson, kennari, frá Torfastöð-
um. Félag þetta mun hafa starfað af tals-
verðum þrótti fyrstu árin, en síðan dró úr
starfsemi þess og var það lagt niður, senni-
lega á fundi á Auðunnarstöðum árið 1913.
Fundargerðabækur þessa félags eru að
líkindum glataðar.
í 2. gr. laga Umf. Víðis segir svo um
stefnumál félagsins: „Tilgangur félagsins
er: a. Að efla og vernda íslenzkt þjóðerni,
mál og menningu. b. Að vinna að hverskon-
ar andlegum framförum og sömuleiðis verk-
legum framkvæmdum, t.d. byggingu sam-
komuhúss o.fl.“
Starfsemi félagsins í dag er einkum
skemmtistarfsemi ýmisskonar og sér félagið
að miklu leyti um það skemmtanalíf, sem
fram fer í sveitinni. Einnig eru íþróttir iðk-
aðar innan félagsins og hefur svo jafnan
verið. Áður fyrr var starfsemin einkum
fólgin í málfundastarfsemi og voru fundirn-
ir jafnan vel sóttir, umræður voru oft fjör-
ugar og rætt var um margvísleg málefni. Þá
gaf félagið lengi út handskrifað blað er
bar nafnið „Heimdallur“ og var það lesið
upp á fundum félagsins. Mjög nefur dregið
úr þessum þætti starfseminnar á seinni ár-
um.
Umf. Víðir nefur jafnan tekið virkan þátt
í starfsemi USVH, enda er félaginu málið
skylt, þar sem það beitti sér fyrir stofnun
sambandsins á sínum tíma.
Fljótlega hófust umræður innan félags-
ins um nauðsyn þess að koma upp samkomu-
núsi í sveitinni fyrir starfsemi félagsins.
Framkvæmdir gátu þó lengi vel ekki haf-
izt vegna fjárskorts, en árið 1934 byggði
félagið danspall hjá svokölluðum Kerum
við Fitjaá og hélt þar skemmtanir að sumr-
inu í nokkur ár. Voru þær skemmtanir vel
sóttar, enda umhverfið sérkennilegt og
fallegt.
Árið 1938 réðist félagið síðan í byggingu
samkomuhúss og hlaut það nafnið „Víði-
hlíð“. Árið 1956 hófst félagið handa um
stækkun og endurbætur á Víðihlíð, með
þátttöku Þorkelshólshrepps og kvenfélags-
ins Freyju. Félagsheimilið Víðihlíð var síð-
an tekið í notkun árið 1961 og hefur síðan
verið starfrækt af þessum þremur aðilum.
Eftirtaldir menn hafa gegnt formanns-
störfum í Umf. Víði: Aðalsteinn Teitsson
1930—1935 og 1936—1937, Ólafur Daníels-
son 1935—1936, Jóhannes Guðmundsson
1937—1945, Ólafur Hinriksson 1945—1948,
Jón L. Jónsson 1948—1951, Sigurvaldi
Björnsson 1951—1954, Helgi Axelsson 1954
—1957, Bjarni Kristmundsson 1957—1960,
Magnús Sveinbjörnsson 1960—1963, Ólafur
B Óskarsson frá 1963.
Félagar í Umf. Víði eru nú 85 talsins.
Félagið minntist 40 ára afmælis síns með
því að bióða félögum sínum í skemtmiferð.
Var sú ferð farin laugardaginn 27. júní s.l.
og var farið til Akureyrar. Á norðurleið-
inni var farin leiðin um Fljót í Skagafirði
og síðan um Ólafsfjörð og fyrir Ólafsfjarð-
armúla. Veður var hið fegursta og skemmtu
þátttakendur sér hið bezta.
Ólafur B. Óskarsson.
22
SKINFAXI