Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1971, Page 4

Skinfaxi - 01.02.1971, Page 4
Félagsmálaverðlaun U M S K Öll starfsem ungmennafélaganna bygg- ist á fórnfúsu sjálfboðastarfi einstakling- anna. Mæðir þá oft mest á forystumönn- unum og einstökum mönnum, sem meg- inþungi starfsins lendir á. Þessir menn gleymast oft þegar rætt er um árangur starfsins, en árangur hinna Stefán Ágústsson sem við getum mælt í metrum, sekúndum eða skoruðum mörkum er oftar á dagskrá í skýrslum og fjölmiðlum. Þó er það svo, að störf þessara manna, félagsmálamannanna, eru algjör forsenda þess að góður árangur náist á öðrum svið- um. Þeir fyrirbyggja að félagsstarfið verði sálarlaust, og eru mennirnir á bak við afrekin. íþróttafólk UMSK var sigursælt á 12. landsmóti UMFÍ og kom heim með marga FORSÍÐUMYNDIN: er frá fyrstu sumarbúðum Héraðssambandsins Skarphéðins að Laugarvatni, en sú starfsemi hefur verið starfrækt árlega af HSK síðan 1966 undir stjórn Þóris Þorgeirssonar. Hefur margt ungt fólk byrjað þar góðan íþróttaferil. verðlaunagripi, og þess var víða getið í afrekaskrám. En því fannst. eitt hafa gleymst, og það voru mennirnir á bak við sigrana, nöfnin sem aldrei sjást í afreka- skrám. íþróttafólkið langaði til þéss að votta þessum mönnum þakklæti sitt á einhvern hátt, færa þeim einhver verð- laun líka, eitthvað til minningar um störf þeirra. Þetta er i stuttu máli forsaga Félags- málabikars UMSK, hann var fyrst veittur 1966 og árlega síðan, látlaus gripur, sem veittur er til eignar þeim aðila, sem þótt hefur leggja sérstaklega mikið af mörk- um til félagsmála á sambandssvæðinu hverju sinni sem þakklætisvottur þeirra, sem starfsins nutu. Dómnefnd, sem ákveður hver hlýtur bikarinn hverju sinni, samanstendur af þrem síðustu verðlaunahöfum. Þeir, sem hafa hlotið félagsmálaverð- laun UMSK eru: 1966 Sigurður Geirdal, Breiðablik 1967 Úlfar Ármannsson, Umf. Bessastaðahrepps 1968 Gestur Guðmundsson, Breiðablik 1969 Sigurður Skarphéðinsson, Umf. Afturelding 1970 Stefán Ágústsson, íþrf. Gróttu. 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.