Skinfaxi - 01.02.1971, Blaðsíða 24
ar, og varð dvöl þeirra hér þeim öllum
afar ánægjuleg.
Þú spyrð margra spurninga i siðasta
bréfi sem ég mun nú svara. Á hvaða tíma
árs? Svarið e:% hvenær sem er á timabil-
inu maí—sept., lengd tímans ákveður við-
komandi sjálfur. Kostnaður? Viðkomandi
greiðir fargjöld sín, en kostnaður við
dvölina er enginn og vinnan vel launuð.
Tegund vinnu? Vinnan er tengd hestum
og kúm og er ekki erfið, nokkur reynsla
í slíkum störfum væri æskileg en er ekki
skilyrði. Aldur: 18 til 30.
Vinsamlegast komið okkur í samband
við einhverja félaga í UMFÍ sem áhuga
hafa á þessu, þvi við höfum mikinn áhuga
á íslandi, og hver gestur verður í sam-
bandi við félag okkar, sem mun gera allt
til þess að gera dvöl hans á írlandi sem
ánægjulegasta. Allar frekari upplýsingar
til reiðu.
Kær kveðja og þakkir,
Michael O’ Sullivan,
Milltown UN Group,
Knockavota,
Milltown,
c/o Kerry,
Ireland.
Skinfaxi hvetur alla sem áhuga hafa á
málinu, að hafa samband við Sigurð
Geirdal á skrifstofu UMFÍ.
Unglingarnir heilsa sumri
Nokkur undanfarin ár hefur Umf.
Hve'-agerðis og Ölfuss heilsað sumri í
Hve agerði með fjölbreyttri dagskrá. Kl.
10 að morgni sumavdagsins fyrsta safnast
hópur unglinga saman til keppni í víða-
vangshlaupi. Keppt er i þremur flokkum,
einum stúlknaflokki og tveimur pilta-
flokkum, 12 ára og yngri og 13 ára og
eldri. Mikil þátttaka hefur verið i keppn-
inni, oftast rúmlega 30 keppendur.
Að hlaupinu loknu er hlé á dagskránni
Unglingarnir leggja af stað í víðavangshlaupið
að morgni fyrsta sumardags.
fram yfir hádegi, en kl. 13.30 hefst sund-
keppni i sundlauginni í Laugaskarði.
Keppt er i nokkrum sundgreinum fyrir
pilta og stúlkur. Mikill áhugi er nú fyrir
sundi hjá æskufólki á staðnum, og eru nú
fjórar æfingar á viku allt árið og stund-
um meira. Árangurinn hefur heldur ekki
látið á sér standa. Að sundkeppninni lok-
inni er haldin sumargleði fyrir ungling-
ana í Hótel Hveragerði með skemmtidag-
skrá og dansi til kl. 19. Það er mikill
sumarhugur í hópnum, enda jafnan
margir, sem hafa í fyrsta sinn tekið þátt
i keppni og leik.
Eftir hádegi hefst sundkeppnin í sundlaug-
inni í Laugaskarði (Ljósm. Ragna Hermanns-
dóttir).
24
SKINFAXI