Skinfaxi - 01.02.1971, Blaðsíða 5
HVAÐ KOSTAR
ÍÞRÓTTASTARFIÐ?
Lögð hefur verið fram ítarleg greinar-
gerð um fjárþörf íþróttahreyfingarinnar.
Greinargerð jaessi er fram komin vegna
tilmæla fjárveitinganefndar Alþingis og
samin af jn'iggja manna nefnd, en i henni
áttu sæti: Þorsteinn Einarsson íjn'ótta-
fulltrúi ríkisins, Hafsteinn Þorvaldsson,
formaður UMFÍ og Gísli Halldórsson,
forseti ÍSÍ. Nefndin hafði hið ágætasta
samstarf um lausn jiessa verkefnis, en
ástæða er til að geta sérstaklega um
vfirgripsmikið og nákvæmt starf Þor-
steins Einarssonar, sem vann viðamestu
rannsóknarstörf nefndarinnar. íþrótta-
hrevfingunni er mikill styrkur að þessari
greinargóðu skýrslu, sem hlýtur að greiða
mjög götuna fyrir auknurn fjárstvrk til
'þróttaiðkana í landinu. Það eru líka
lofsverð vinnubrögð, að æðstu forystu-
menn ÍSÍ og UMFÍ skuli vinna sameigin-
lega ásamt íþróttafulltrúa ríkisins að
verkefni sem þessu, og sýnir það glöggt
aukið samstarf og einingu allra þeirra,
sem að íjrróttamálum vinna. Nefndin var
skipuð í maímánuði s.l. og vann því
otrúlega mikið starf á skömmum síma.
Fæstir gera sér ljóst hversu geysi viða-
mikið íþróttastarfið í landinu er orðið.
Kostnaðurinn við íþróttaleg samskipti er
orðinn mjög hár og hefur stóraukizt síð-
ustu ár. Var því orðin brýn þörf á að
gera úttekt á þessum málum, — sýna
kostnaðinn skýrum stöfum og gera grein
fyrir fjárþörfinni.
Upphaf málsins má rekja til jiings-
ályktunartillögu ju'iggja alþingismanna
s.l. vor, Halldórs E. Sigurðssonar, Einars
Ágústssonar og Bjarna Guðbjörnssonar.
Tillögunni var vísað til fjárveitinganefnd-
ar, sem vísaði tillögunni til ríkisstjómar-
innar með tilmælum um að forseta ISI,
formanni UMFI og íjrróttafulltrúa ríkis-
ins yrði falið að gera áætlun um fjár-
jrörf íþróttahreyfingarinnar til eins árs.
Þetta var gert og áætlunin lögð fvrir
fjárveitinganefnd við afgreiðslu fjárlaga-
frumvarps fvrir árið 1971.
í greinargerð Jrremenninganna em
margar skrár og yfirlit um kostnað við
íþróttastarf og íjnóttamannvirki undan-
farin ár, og á Jreim könnunum er byggð
áætlunin um fjárþörfina fyrir næsta ár.
Eftir að hafa sýnt rækilega fram á
fjárþörfina vegna íþróttaiðkana og
íjn'óttasamskipta, eru tillögur nefndarinn-
ar um fjárhagsáætlun sem hér segir:
skinfaxi
5