Skinfaxi - 01.02.1971, Blaðsíða 18
Héraðsmótin
Héraðsmót Skarphéðins hafa verið
haldin í um 60 ára bil, og oftast að Þjórs-
ártúni. Þessi mót hafa jafnan verið einna
merkustu héraðshátíðir á Suðurlandi og
oftast geysivel sóttar. Iþróttakeppnin,
frjálsar íþróttir og glíma, hafa alltaf sett
svip sinn á hátíðina, en áður fyrr skipuðu
ræðuhöld og umræður talsvert rúm á
mótunum.
Fyrsta Þjórsártúnsmótið var í rauninni
undanfari stofnunar Skarphéðins, því það
var haldið áður en sambandið var stofn-
að. Mótið var háð 9. júlí 1910, og dag-
skrá mótsins var eftirfarandi:
1. Samkoman sett: Guðlaugur Þórðar-
son, form. mótsnefndar.
2. Ræða: Helgi Valtýsson.
3. Sungið: Vormenn íslands.
4. Kappglíma.
5. Sungið: Táp og fjör og frískir
menn.
6. Reiptog og klifur.
7. Snætt.
8. Ræða: Einar Hjörleifsson.
9. Sungið: Sjá, hin ungborna tíð.
10. Hástökk, langstökk, kapphlaup,
grísk-rómversk glíma.
11. Sungið: Drottinn, sem veittir.
12. Sjálfráðar, almennar skemmtanir.
í bréfi til Skinfaxa, hefur einn af for-
ystumönnum Skarphéðins frá fyrri tíð,
Brynjólfur Melsteð, sagt frá þessu fvrsta
móti þannig:
„Samkoman hófst með ræðu Helga
Valtýssonar: „Vorhugur og vormenn". ís-
lenzka glíman skipaði öndvegissæti, og
keppendur í glímu voru 20. Sigurvegar-
inn var Iiaraldur Einarsson frá Vík í
Mýrdal. Hann var 21 árs að aldri og sagð-
ur 21 fjórðungur að þyngd. Vel var hann
vaxinn og glímdi liðlega. Ymsar fleiri
íþróttir voru á dagskránni svo sem róm-
versk glíma, stökk og hlaup og reip-
dráttur. Einn drengur fór á handahlaupi,
en það er íþrótt, sem vel er þess verð að
vera vakin á ný. Hún er forn og þjóðleg
og hefur um langan aldur verið talin
íþrótt afburðamanna."
Frá héraðsmóti HSK
að Þjórsártúni 1913.
Helgi Ágústsson, form.
HSK, stendur til vinstri
á glímupallinum. Mað-
urinn með hattinn, sem
snýr baki að mynda-
vélinni er Kári Arn-
grímsson frá Ljósa-
vatni.
18
SKINFAXI