Skinfaxi - 01.02.1971, Blaðsíða 23
íþróttakennari í Reykholti. Stjórn UMSB
var öll endurkjörin. Hana skipa nú:
Formaður: Vilhjálmur Einarsson, Reyk-
holti; gjaldkeri: Óttar Geirsson, Hvann-
eyri; ritari: Sig. B. Guðbrandsson, Borg-
arnesi; meðstj.: Sig. Guðmundsson, Leir_
á; Sveinn Guðmundsson, Plóðatanga.
Héraðsþing Úlfljóts var haldið að Hótel
Höfn — Hornafirði 7. janúar sl. Gestir
þingsins voru þeir Halsteinn Þorvaldsson,
Valdimar Óskarsson, stjórnarmenn UMFÍ
og Sig. Geirdal, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Formaður Úlfljóts setti þingið og flutti
skýrslu stjórnar. Hefuru starfsemi Úlf-
ljóts verið með sóma á árinu, m. a. hefur
sambandið staðið fyrir spurningakeppni,
haldið uppi íþróttakennslu og staðið fyrir
íþróttamótum enda á Úlfljótur á að skipa
afbragðs frjálsíþróttafólki. Þá lagði for-
maður fram áætlun um starfsemi Úlfljóts
á næsta ári og er þar m. a. gert ráð fyrir
áframhaldandi spurningakeppnum, inn-
anhússmótum i frjálsum íþróttum í vet-
ur, eflingu sundíþróttarinnar á svæðinu,
rekstri sumarbúða fyrir unglinga o. fl.
o. fl.
Umræður á þinginu snérust að verulegu
leyti um 14. landsmót MFÍ og þátttöku
Ulfljóts i því, en fullur áhugi var fyrir
Nokkrir fulltrúanna á héraðsþingi Ungmenna-
sambandsins Úlfljóts í A-Skaftafeilssýslu.
því að mæta á landsmóti með fjölmenna
og vaska sveit íþróttafólks. Þá urðu
nokkrar umræður um lög og skipulags-
mál sambandsins og var i því sambandi
tekin ákvörðun um að ráða starfsmann
næsta sumar. Fer það mjög í vöxt að hér-
aðssamböndin ráði sér framkvæmda-
stjóra og er útlit fyrir að næsta sumar
verði starfandi framkvæmdastjórar hjá
9 héraðssamböndum að minnsta kosti.
Úlfljóti bættist góður liðstyrkur á sl. ári,
þegar UMF Öræfa gerðist aðili að sam-
bandinu og einnig mun það styrkja Úlf-
ljót verulega að nýr starfskraftur og líf
er að færast i UMF. Sindra i Höfn. Stjórn
Úlfljóts skipa nú:
Formaður: Torfi Steinþórsson, Hala,
Umf. Vísi; ritari: Ingólfur Björnsson,
Grænahrauni, Umf. Mána; gjaldkeri: Jón
Gunnar Gunnarsson, Höfn, Umf. Sindra;
meðstj.: Ari Magnúson, Hofi, Umf. Öræfa;
Kristján Jónsson, Rauðabergi, Umf. Val.
Erlend samskipti
írsk æskulýðssamtök sem stuðla að
auknum kynnum ungs fólks viðsvegar að
úr heiminum hafa skrifað UMFÍ og óskað
eftir ungum mönnum frá íslandi til dval-
ar og vinnu á irskurn búgörðum næsta
sumar, eða í „Sveitavinnu — Sumarfrí“
eins og þeir kalla það.
Framkvæmdastjóri UMFÍ skrifaði þeirn
aftur og óskaði eftir nánari upplýsingum
um málið og fer svarbréf írans hér á
eftir í lauslegri þýðingu, til upplýsingar
þeim, sem áhuga kynnu að hafa á mál-
inu.
Kæri herra.
Þökkum bréf þitt varðandi „Farm-
working holiday in Ireland“. Síðasta ár
dvöldu hjá okkur ungir menn frá Noregi
og Danmörku, árin þar á undan voru hér
Finnar, Frakkar, Belgar og Tékkoslóvak-
skinfaxi
23