Skinfaxi - 01.02.1971, Síða 9
<>g verklegum átökum og skemmtunum.
Það var gæfa Skarphéðins að Sigurður
Greipsson var kjörinn formaður sam-
bandsins árið 1921. Með honum í stjórn
voru einnig ágætir félagsmálamenn, þeir
Sigurjón Sigurðsson í Raftholti og Brynj-
ólfur Melsteð. Árið eftir, 1922, var
Iþróttasambandinu breytt í héraðssam-
band og varð þá starfið fjölbreyttara og
umfangsmeira. Hér urðu afdrifarík tíma-
mót og skarpir og framsýnir forystumenn
mörkuðu brautina giftusamlega.
Um áratuga skeið hefur Skarphéðinn
verið þróttmesta og öflugasta héraðssam-
bandið þegar á heildina er litið, enda
hefur HSK sannað það rækilega með sigri
á öllum landsmótum UMFÍ síðan 1949.
Eitt stærsta verkefni HSK á síðastliðn-
um áratug var undirbúningur og fram-
kvæmd 12. landsmóts UMFÍ. Það tókst
mjög vel og varð sambandinu til sóma og
færði ] iví einnig fjárhagslegan ávinning,
sem aftur varð forsenda þess, að HSK
gat byrjað næsta stórátak sitt, sem var að
boma sér upp eigin húsnæði. Héraðsmið-
stöð ungmennafélaganna í Skarphéðni
HSK hefur sigr-
að á 7 landsmót-
um í röð'. Hvern-
ig fer í sumar
á 14. landsmóti
UMFÍ á Sauð-
árkróki?
Fjórar kcmpur úr forystusveit HSK fyrr á
dögum. Frá vinstri: Brynjólfur Melsteð. Sig-
urður Greipsson, Sigurjón Sigurðsson og Helgi
Ágústsson. Myndin er tekin í 60 ára afmælis-
hófi HSK.
var tekin í notkun fyrir tveimur árum, og
er þetta félagsheimili HSK til hins mesta
sóma.
Forsendan fvrir velgengni Skarphéðins
er vafalaust góð og vakandi forysta um
langt skeið, rótgróin félagshyggja í hérað-
inu og tiltölulega mikill fjöldi ungs fólks.
Sem dæmi um gott skipulag má nefna, að
fyrir nokkrum árum tók stjórnin ujip þá
nýbreytni að boða til formannafunda
milli héraðsþinga, bæði haust og vor, en
héraðsþingin eru venjulega haldin í
janúar. Á formannafundunum eru rædd
ýmis mál, sem til úrlausnar koma milli
héraðsþinga. Þetta styrkir mjög allt starf
forystunnar og eflir jafnframt kynni og
samvinnu hinna einstöku félaga.
Hér er ekki rúm til að gera sögu Skarp-
héðins nein skil, enda er það viðamikil
saga um fjölþætt og mikið starf í sex ára-
tugi. Þess skal getið, að Ingimar Jóhann-
esson ritaði ítarlega sögu Skarphéðins í
tilefni 40 ára afmælis sambandsins.
Skinfaxi óskar Skarphéðni til hamingju
með glæsilegan starfsferil og óskar hon-
um allra heilla í framtíðinni.
S K I N FAX I
9