Skinfaxi - 01.02.1971, Page 13
RÆTT V/Ð ÞÓRI ÞORGEIRSSON:
ÍÞRÓTTIR
eru einn þáttur félagsstarfsins
Þórir Þorgeirsson, íþróttakennari og
oddviti á Laugarvatni hefur í 25 ár haft
mestan veg og vanda af íþróttamálum
Skarphéðins. Hann hefur búið íþrótta-
fólk HSK undir þátttöku á 8 landsmótum
og leitt það til sigurs á 7 síðustu lands-
mótum í röð. En engu ómerkari er
íþróttakennsla Þóris við skólana á
Laugarvatni og við sumarbúðir HSK,
sem hann hefur stjórnað frá upphafi. Það
var því ekki að ófyrirsynju að Skinfaxi
knúði dvra hjá Þóri á Laugarvatni til að
fræðast um starf hans hjá Skarphéðni.
— Hvenær byrjaðir þú að starfa með
Skarphéðinsmönnum?
— Það var árið 1945, og síðan hef ég
kennt meira og minna á sumrin og vorin
a hverju ári nema 1950, en þá dvaldi ég
erlendis.
— Og unnið að mörgum stórverkefn-
um á þessum tíma?
— Það stóra í þessu er auðvitað að
halda stöðugri þróun og krafti í öllu
félagsstarfinu, og um það hefur stjórn
HSK og stjórnir félaganna séð. Ég hef
haft þá ánægju að fá að starfa með að
þessu. Landsmótin hafa náttúrlega alltaf
verið stór verkefni. Fyrsta landsmótið,
sem ég sótti með hóp HSK-fólks var á
Laugum 1946, en síðan á mótinu í Hvera-
gerði 1949 höfum við haldið sigurverð-
laununum.
— Hvernig eru aðstæður til íþrótta-
iðkana á félagssvæðinu?
— Mjög misjafnar, og það sem mér
þykir leiðast er að þær hafa víða ekkert
batnað frá því í upphafi hreyfingarinnar.
Sums staðar hafa þó verið byggðir vellir,
sem hafa gjörbreytt aðstöðunni og þar
með árangrinum. Iþróttahús eru fá og
lítil, en félagsheimilin hafa komið að
góðum notum fyrir íþróttaæfingar á vetr-
um, sérstaklega boltaleikina. Þetta þýðir
árangursríkari æfingar í frjálsum íþrótt-
um á vorin, þar sem fólk hefur haft góða
hreyfingu á veturna. í heild er íjrrótta-
aðstaða á Skarphéðins-svæðinu ekki betri
en víðast annars staðar.
— Hvers vegna hefur Skarphéðinn þá
skarað fram úr öðrum héraðssamböndum
í íþróttum um langt skeið?
— Félagsstarfið í heild er fjölbreytt og
kraftmikið og skijnilagningin hefur verið
góð. Stjórn HSK hefur haldið mjög góð-
um tengslum við félögin, og liafa t. d.
formannafundirnir bæði haust og vor
komið að miklum notum. Það er seinlegt
og erfitt fyrir einn íþróttakennara að
SKINFAXI
13