Skinfaxi - 01.02.1971, Qupperneq 15
öðrum sambandsaðilum UMFÍ að
hnekkja nú veldi Skarphéðins. Við höfum
alltaf lagt áherzlu á að byrja undirbún-
inginn snemma, og ef ekki verður brestur
á því, þá geta Skarphéðinsmenn verið
bjartsýnir.
— Hvað finnst þér eftirminnilegast í
starfsferli þínum hjá Skarphéðni?
— Eg neita því ekki að það hefur verið
ánægjulegt að koma heim af landsmót-
unum eftir ánægjulega keppni og sætan
sigur í góðum hópi. Þær stundir gleym-
ast ekki. Hins vegar liafa yfirvöld og aðrir
heimafyrir sýnt hinum ungu sigurvegur-
um furðulegt tómlæti, er þeir færðu
byggðarlagi sínu sigurinn á stærstu
íþróttamótum landsins. Aldrei hefur
neinn fyrir hönd héraðsins tekið á móti
keppnisfólki og forystu HSK, eða boðið
það velkomið þegar liðið hefur fært sig-
urinn heim. Þeir, sem standa utan við
ungmennafélags- og íþróttahreyfinguna,
virðast ekki hugsa út í það, að slíkur
sigur vinnst ekki nema með þrotlausu
starfi, sem oft er þungur róður. Eg er
viss um að merki héraðanna er hvergi
glæsilegar á lofti haldið heldur en af hin-
um ungu fulltrúum þeirra á landsmótum
UMFÍ.
Ölafur Unnsteinsson
Ólafur Unnsteinsson iþróttakennari
starfaði sem íþróttaþjálfari hjá HSK s.l.
sumar með góðum árangri og annaðist
einnig almenna framkvæmdastjórn hér-
aðssambandsins á þeim tíma. Árangurinn
af starfi hans var góður, eins og bezt má
sjá af framförum HSK-fólksins í frjálsum
iþróttum á s.l. ári. Sjálfur á Ólafur lang-
an og óvenjufjölbreyttan íþróttaferil á
vegum HSK. Árið 1951, eða fyrir 20 árum,
keppti hann fyrst á HSK-móti og þá í
sundi. Samtals varð hann 9 sinnum HSK-
meistari í sundgreinum. Tvisvar hefur
hann verið í knattspyrnuliði, sem vann
HSK-mótið og oft leikið i HSK-úrvalinu.
Þekktastur er Ólafur samt sem frjáls-
íþróttamaður. Auk þess hefur hann keppt
á skíðum, í körfuknattleik og í blaki.
Hann hefur unnið 28 sigra á héraðsmót-
um HSK í frjálsíþróttum og 4 sinnum á
innanhússmótum að auki. Samtals hefur
hann þvi sigrað 43 sinnum á héraðsmót-
um HSK eða oftar en nokkur annar.
Ólafur hefur sett 35 HSK-met i frjáls-
iþróttum, þar af 20 drengja- og unglinga-
met. Hann hefur sett eitt ísl. drengjamet
í 60 m hl. og unglingamet í fimmtarþraut.
Ólafur sigraði í 100 m. hlaupi á lands-
mótum UMFÍ 1957 og 1961. Hann hefur
einnig keppt mikið erlendis, sérstaklega í
Danmörku og getið sér góðan orðstir.
Ólafur er enn i fullu fjöri sem keppnis-
maður, sem marka má m. a. af þvi að
hann átti beztan árangur innan UMFÍ
í spjótkasti á s.l. ári. Þessi 20 ára
iþróttaferill Ólafs er þvi bæði starfsmikill
og árangursrikur.
Ólafur
Unnsteinsson.
43 sigrrar á
héraðsmótum
HSK.
SKINFAXI
15