Skinfaxi - 01.02.1971, Síða 16
AUKIÐ STARF KREFST
MEIRI FJÁRMUNA
Fjármál héraðssambandanna hafa
löngum verið erfið viðfangs og erfitt að
ná endunum saman, enda fastir tekju-
stofnar allt of lágir. Eggert Haukdal á
Bergþórshvoli hefur verið gjaldkeri Hér-
aðssamkandsins Skarphéðins síðustu 10
árin sam‘:!eytt og setið í stjóminni lengst
núverandi stjórnarmanna.
— Hver er þróunin í fjármálum sam-
bandsins undanfarin ár?
— Starfsemi Skarphéðins hefur stór-
aukizt í heild á undanfömum árum, og
slíkt kallar auðvitað á miklu meira fjár-
magn en áður. Tímarnir hafa líka breytzt,
og það er eðlilega erfiðar nú en áður að
fá fólk til sjálfboðaliðsstarfa. Það er ekki
vegna þess að það vilji vinna minna nú
eða leggja minna á sig, heldur vegna
þess að verkefnin eru nú svo miklu fleiri
og stærri. Óhjákvæmilegur kostnaður við
hina ýmsu þætti starfsins er orðinn svo
mikill að það er erfitt að brúa bilið. S.l.
þrjú ár hefur sambandið fengið allgóðar
tekjur af eigin samkomuhaldi í sam-
bandi við vel heppnaða spurningakeppni,
en slíkt eru ótryggar tekjur.
— Hverjir eru helztu tekjustofnarnir?
Skattar frá félögunum og styrkir úr
héraðinu eru föstu liðirnir. Auk þess tekj-
ur af skemmtunum eða íþróttamótum,
sem raunar geta snúizt í tap, þegar veðrið
bregst eins og t. d. á afmælishátíð okkar
í sumar. Einnig höfum við fengið tekjur
af happdrætti og nú úr getraunastarf-
— Vibtal við
Eggert
Haukdal
seminni eftir að hið nýja fyrirkomulag
þeirra komst á.
— Hafið þið ekki staðið að kostnaðar-
sömum framkvæmdum?
— Jú, vissulega og þar ber náttúrlega
langhæst bygging okkar eigin félagsheim-
ilis á Selfossi, þar sem miðstöð sam-
bandsins er og margháttuð félagsstarf-
semi fer fram. Framkvæmd 12. lands-
móts UMFI, sem HSK sá um á Laugar-
vatni 1965, tókst mjög vel, og hagnaðin-
um var varið til að byrja á því að koma
upp húsnæði fyrir félagið. Félagsmið-
stöðin hefur nú verið starfrækt í tvö ár.
— Hvernig er útlitið í f jármálunum?
— Það hefur að vísu syrt nokkuð í ál-
inn undanfarið, en samt er engin ástæða
til svartsýni. Við erum að sjálfsögðu
þakklátir fyrir þann styrk, sem við fáum
frá sýslu- og sveitarfélögum og frá Bún-
aðarsambandinu, en auðvitað mætti hann
stækka. Við bindum miklar vonir við hið
nýja æskulýðsmálafrumvarp, sem Alþingi
hefur samþykkt. Við vonum að það stuðli
að framkvæmd þess ásetnings okkar að
16
SKINFAXI