Skinfaxi - 01.02.1971, Qupperneq 21
Ég vil ekki setjast við og skamma við-
komandi fyrir sjálfsblekkingu þeirra, en
vil nú gefa ykkur öllum, sem hafið að-
stöðu til sundiðkana, það ráð að taka
dálítið á við æfingar ykkar, og því til
áréttingar ætla ég að láta fylgja hér með
einfalda létta áætlun til að fara eftir:
A — Gerið, eftir heita steypibaðið í
byrjun, nokkrar einfaldar teygju-
æfingar á landi í um það bil 5
mín.
B — Syndið um rólega í lauginni í um
5 mín.
C — Syndið nú 4—8 sinnum endilanga
laugina eins hratt og þið getið og
hvílið ykkur í eina mínútu milli
sprettanna. Fjölda þessara spretta
og vegalengdina má síðan auka
smátt og smátt.
É) — Syndið í um það bil 10 mín. ýmist
handatök, fótatök eða æfið snún-
inga.
E — Syndið 200—1000 m. langa vega-
iengd helzt á jöfnum hraða í allt
að 15—30 mín. eftir því sem þið
hafið tíma til.
F — Rólegar æfingar, heitt bað á eftir
og gufubað ef hægt er.
Munið við æfingar ykkar, að betra er
að hvíla sig í vatninu eftir erfiðið en uppi
á bakkanum.
Reynið að synda með breytilegum
sundaðferðum og eins tæknilega rétt og
vel og þið getið. Með slíku verður meiri
tilbreyting á æfingunni og síður er hætta
á að leiði setjist að manni.
0,g að lokum. Farið ekki úr sundinu
beint út í vetrarkuldann með hárið blautt,
°g verið varkár með böðin, þegar ]rið
eruð með kvef.
GÞ.
Öflugt starf Umf. Selfoss
Ungmennafélag Selfoss hefur stöðugt
verið að eflast að undanförnu, og hefur
félagið nú á að skipa fjölmennum og dug-
andi íþróttahópum í flestum íþróttagrein-
um. 10 ráð eru starfandi í félaginu í hin-
um ýmsu greiuum íþrótta og félagsmála.
Stjórn félagsins hefur verið vel vakandi
í starfi, sem m. a. má sjá af því, að hún
hélt 45 bókaða fundi á s.I. ári auk félags-
og nefndafunda. Kom þetta fram á aðal-
fundi félagsins, sem haldinn var í janúar.
Jafnframt auknu starfi og betri árangri
hefur fjárhagur félagsins farið batnandi.
Félagið hefur skrifstofu sína og félagsað-
stöðu í Skarphéðinshúsinu. Eitt af brýn-
ustu baráttumálum félagsins er að komið
verði upp góðum íþróttasal á staðnum, en
félagsmenn hafa lagt mikla vinnu af
mörkum við íþróttavöllinn á Selfossi.
Hörður Óskarsson íþróttakennari var
einróma endurkjörin formaður Umf Sel-
foss og með honum í stjórn: Sigurður
Ingimundarson ritari, Gunnar A. Jónsson
gjaldkeri, Pétur Pétursson varaform. og
Benedikt Sigurðsson meðstjórnandi.
Stjórn Umf. Selfoss. Sitjandi frá vinstri: Sig-
urður Ingimundarson, Hörður Óskarsson
form., Pétur Pétursson. Standandi frá vinstri:
Gunnar A. Jónsson, Benedikt Sigurðsson.
SKINFAXI
21