Skinfaxi - 01.10.1971, Síða 3
SKINFAX!
Tímarit Ungmennafélags fslands — LXII. árgangur — 4.-5. hefti 1971
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju.
Ritstjóri Eysteinn
ERLEND SAMSKIPTI
Allt frá stofnun ungmennafélaganna
má segja, að höfuðstarfsvettvangur
þeirra hafi verið innanlands, þau hafa
lagt allan kraft sinn í félagslega, menn-
ingarlega og íþróttalega upppbyggingu.
Samskipti við samsvarandi félagasam-
tök á hinum Norðurlöndunum hafa þó
jafnan verið nokkur í formi blaða og
bréfa og einstöku heimsóknir hafa átt
sér stað. Hæst ber þar utanför U.M.F.Í.
1961 og svo utanförina nú i sumar, en
báðar þessar ferðir þóttu takast sérstak-
lega vel bæði hvað árangur og fram-
kvæmd snerti. Við sem fórum þessa för í
sumar áttum þess kost að kynnast því
hvernig Danir framkvæma slík mót og
niátti mjög margt af þeim læra. Við átt-
um þess einnig kost að kynnast ýmsum
helztu forustumönnum samtakanna í
Danmörku og einnig á hinum Norður-
löndunum. Mikið var rætt um samskipti
niilli landa og komu fram rnargar tillögur
sem ræddar voru fram og aftur.
Það sem mér hefur dottið í hug að við
settum að stefna að er þetta:
1. Treysta tengsl okkar við ungmenna-
samtökin á hinum Norðurlöndunum,
einkum i Danmörku, þar sem þau eru þau
einu sem starfa á nákvæmlega sama
grundvelli og við. Það myndum við gera
með persónulegum og bréflegum sam-
skiptum og með því að sækja þing og
ráðstefnur, sem vitað er að mikla þýð-
ingu hafa fyri rsamstarfið.
2. Gerast aðilar að Nordisk Gymynastik
forbund, en í því sambandi eru öll helztu
ungmennasamtök á Norðurlöndum sem
vinna á sama grundvelli og við.
3. Að skipuleggja fyrir milligöngu U.M.
F.í. heimsóknir milli íþróttahéraða hér
og erlendis. Mætti í því sambandi sam-
eina héraðssambönd hér móti hinum
stóru samböndum erlendis til þess að ná
meiri jöfnuði í keppni. Stefna bæri að
fjölbreytni í vali iþróttagreina.
4. Skiptiheimsóknir unglinga. Það hlýt-
ur að vera eitt af stefnumálum U.M.F.f.
að stuðla að því að ungt fólk kynnist hög-
um og háttum annarra þjóða og jafn-
framt að kynna erlendu æskufólki land
SKiN FAX I
3