Skinfaxi - 01.10.1971, Page 4
okkar og þjóö. Vandalítið ætti að vera að
koma fyrir í hinum fjölmörgu íþrótta-
búðum héraðssambandanna nokkrum
frændum okkar, jafnframt því sem þeir
myndu taka á móti ungmennum frá
okkur i sams konar dvöl hjá sér.
Þessir liðir, sem ég hef hér sett upp eru
aðeins hugmyndir, sem útfæra má á ótal
vegu eftir aðstæðum hverju sinni.
Ég hef ekki enn minnst á kostnað sem
yrði óhjákvæmilega mikill við svona ferð-
ir. Spurningin er held ég ekki aðallega
sú, hvað hluturinn kostar heldur ef til
vill fyrst og fremst, er hann þess virði að
unnið sé að honum og sé hann það, tekst
okkur að kljúfa kostnaðinn.
Stjórn U.M.F.Í. hefur oft á fundum sín-
um rætt um erlend samskipti og verið
sammála um að treysta þau sem bezt.
Hún telur það verðugt verkefni ung-
mennafélaganna að stuðla að heilbrigð-
urn kynnum æskufólks á Norðurlöndum
með samskiptum íþróttafólks, með félags-
legum heimsóknum og menningarlegum
kynnum.
Við höfum stundum látið í veðri vaka
að ekkert sé okkur óviðkomandi. Hér er
rætt um einn vettvanginn enn sem við
getum beint huganum að, vettvangi sem
ég vona að margir ungmennafélagar eigi
eftir að vera þátttakendur i sér til fróð-
leiks og skemmtunar, sér til aukins
þroska og hæfni, íslandi til heilla.
FORSÍÐUMYNDIN
er tekin í knattspyrnukeppni landsmóts-
ins í leik UMSS og UMSK, sem var fyrsti
knattspyrnuleikur, sem háður var á nýja
grasvellinum, og lauk með sigri Ung-
mennasambands Kjalarnesþings. (Ljósm.
Helgi Dan.)
OPNUMYNDIRNAR
sýna ýmis eftirminnileg atvik og andlit
frá landsmótinu. í efstu myndaröðinni
eru frá vinstri: Stefán Hallgrímsson í há-
stökki, Jón Benónýsson i 100 m, keppni i
1500 m, þrír fyrstu í kringlukasti og svip-
mynd frá pönnukökukeppninni. Miðröð:
Handknattleiksstúlkurnar þingeysku,
fimleikastrákar frá Vestmannaeyjum, og
Helga Hauksdóttir i hástökki. Neðsta röð-
in: Sex fyrstu í 100 m kvenna, Sigurður
Jónsson sigurvegari í 100 m og 400 m,
glímumenn í léttari flokki, þátttökusveit
Austur-Húnvetninga, og neðst í horninu
sést niður á sýningarpallinn, meðan þjóð-
dansar eru dansaðir.
4
SKINFAXI