Skinfaxi - 01.10.1971, Qupperneq 5
BOÐSGESTIRNIR
FRÁ DANMÖRKU
Tveir ágætir forystumenn frá Dan-
mörku voru gestir á 14. landsmóti UMFI
ásamt konum sínum. Það voru þeir Niels
Ibsen, formaður bræðrasamtaka UMFI í
Danmörku, Det Danske Gymnastik og
Ungdomsforeninger (DdGU) og Jón Þor-
steinsson íþróttakennari við Iþróttaskól-
ann í Sönderborg á Jótlandi. Kom Jón
Þorsteinsson í boði stjórnar UMFI en
Ibsen í boði landsmótsnefndar. Stjórn
UMFI vildi sýna Jóni örlítinn þakklætis-
vott fyrir þá ómetanlegu aðstoð, sem
hann hefur veitt íslenzkum íþróttafélög-
um á liðnum árum, sérstaklega í sam-
bandi við erlend samskipti. Jón hefur um
langt árabil starfað í Danmörku og er
mikils metinn forystumaður í íþrótta- og
æskulýðsmálum þar.
Niels Ibsen, hinn ágæti formaður
dönsku ungmennafélaganna, hefur mikla
reynslu í starfi. Hið öfluga starf samtaka
Frá hægri: Jón Þorsteinsson, Niels Ibsen og
konur þeirra á göngu á Sauðárkróki. (Ljósm.
Gunnar)
hans kom glöggt í ljós á landsmótinu í
Holstebro, sem íslenzkir ungmennafélag-
ar tóku þátt í nú í sumar.
Þeir Niels Ibsen og Jón Þorsteinsson og
konur þeirra dvöldu á landsmótinu og
fylgdust með öllu, sem þar fór fram.
Einnig dvöldu þau í Reykjavík og skoð-
uðu nágrenni höfuðborgarinnar. Viðræð-
ur forystumanna UMFI við þessa dönsku
gesti voru mjög gagnlegar, og er ekki
nokkur vafi, að sú aukna samvinna, sem
nú hefur verið tekin u]jp við danska að-
ila, á eftir að verða mikil lyftistöng fyrir
íslenzku ungmennafélögin.
Þeir Jón og Ibsen færðu UMFI að gjöf
tvo vandaða silfurbikara, sem síðar verð-
ur ákveðið um ráðstöfun á.
Heiðursgestur Landsmótsins
Árni Guðmunds-
son 1 ræðustól á
landsmótinu.
(Ljósm. Gunn-
ar)
Árni Guðmundsson skólastjóri íþrótta-
kennaraskóla íslands var lieiðursgestur
landsmótsins og dvaldi fyrir norðan móts-
dagana ásamt konu sinni. Árni flutti ræðu
í hátíðardagskránni og fjallaði um hin
áhugaverðustu málefni fyrir æsku nútím-
ans, tækniþjóðfélagið og hlutverk ung-
mennasamtaka í því. Árni rifjaði upp
margt úr sögu ungmennafélaganna, en
ungur hóf hann keppni og starf í röðum
þeirra.
SKINFAXI
5