Skinfaxi - 01.10.1971, Blaðsíða 8
Njarðvíkingar og Borgfirðingar berjast af
áhuga í körfuknattieikskeppninni.
Edda landsmótsmet 12.8 sek. Edda sigr-
aði svo örugglega í 400 m. hlaupinu, en
nú var keppt í þeirri grein í fyrsta sinn á
landsmóti. UMSK-stúlkurnar sigruðu
hins vegar með yfirburðum í boðhlaup-
inu á nýju landsmótsmeti. Kristín Björns-
dóttir (UMSK) vakti mikla athygli fyrir
fjölhæfni og frábæra frammistöðu í þeim
þremur greinum, sem hún tók þátt í. Hún
sigraði í hástökki og setti nýtt landsmóts-
met, sem jafnframt var bezta afrekið í
frjálsum iþróttum kvenna. Þá varð hún
nr. 2 bæði í langstökki og 400 m. hlaupi.
Kristín var stigahæst frjálsíþróttastúlkn-
anna á mótinu og fékk því tvenn sérverð-
laun.
í karlaflokki endurtók Kari Stefánsson
(UMSK) það afrek sitt á Eiðamótinu að
vinna bezta afrekið samkvæmt stigatöflu.
Hann gekk ekki heill til skógar en stökk
samt 14,38 m. í þrístökki, heilum metra
lengra en næsti maður. Ekki er hægt að
segja að neinn óvæntur sigur hafi unnizt,
en keppnin var oft geysijöfn. Það var
snemma ljóst, að af 30 keppendum í 100
m. hlaupinu myndu þeir Sigurður Jóns-
son (HSK) og Jón Benónýsson (HSÞ) berj-
ast um sigurinn, en það var ekki fyrr en
á síðustu metrum úrslitahlaupsins, sem
ljóst varð, hvor myndi sigra. í fyrsta riðli
undanrásanna sigraði hinn kunni knatt-
spyrnumaður Birgir Einarsson (UMFK)
öllum að óvörum, enda mun hann ekki
hafa keppt i greininni áður. Ekki er að
efa að Birgir gæti náð frábærum árangri
í spretthlaupum, ef hann legði rækt við
þau. Því miður gat hann ekki haldið
áfram í 100 m.-keppninni, vegna þess að
milliriðlar voru á sama tíma og knatt-
spyrnukeppnin. Mótvindur var, þegar
úrslitasprettur 100 m. hlaupsins var
hlaupinn og tíminn því ekki eins góður
og ella hefði verið. I undankeppninni
hljóp Jón Benónísson á 11.4, Sigurður
Jónsson á 11.5 og á 11.7 sek. hlupu Guð-
mundur Jónsson (HSK), Birgir Einarsson
(UMFK), Lárus Guðmundsson (USAH),
Sævar Larsen (HSK), Trausti Svein-
björnsson (UMSK) og Guðmundur Guð-
mundsson (UMSS).
I hástökki slógu joeir Hafsteinn Jóhann-
esson (UMSK) og Stefán Hallgrímsson
(UIA) landsmótsmetið. Hafsteinn sigraði,
en báðir stukku sömu hæð. Stefán lét
líka til sín taka í langstökkinu, jrar sem
hann varð annar og enn kom hann við
§
SKINFAXI