Skinfaxi - 01.10.1971, Page 12
Sigurður Skarphéðinsson, form. IJMSK, ásamt
frjálsíþróttastúlkunum með sérverðlaun fyrir
frjálsar íþróttir.
í hlé og földu sig í tjaldbúðunum eða
voru fjarlægðar af lögreglunni. Drukkið
fólk verður að viðundri á móti sem þessu.
í heilbrigðri skemmtan og drengilegum
leik á áfengið ekki heima. Um það sam-
einast allir ungmennafélagar og um það
vitna landsmótin.
Sambands-
þing
UMFÍ
26. sambandsþing Ungmennafélags Is-
lands verður haldið í Húnavallaskóla í
Áustur-Húnavatnssýslu dagana 30. og 31.
október 1971.
Eins og kunnugt er, eru sambandsþing-
haldin annað hvert ár, og var það síð-
asta haldið að Laugum í Suður-Þingeyj-
arsýslu 1969.
Mörg mál verða lögð fyrir þingið að
þessu sinni, enda hefur starfsemi UMFI
aldrei verið þróttmeiri en undanfarin tvö
ár.
Helztu jringmál eru þessi: Unglinga-
starfið, erindrekstur og útbreiðslustarf-
semi, íþróttamál, fjármál, húsnæði og
starfsmannahald UMFÍ, æskulýðsmál, fé-
lagsmálaskóli UMFÍ, útgáfustarfsemi,
Þrastaskógur og framkvæmdir þar, leik-
ritasafn UMFÍ, starfsíþróttir, íþróttaget-
raunir, landgræðslumál, erlend samskipti
og 15. landsmót UMFÍ.
Búizt er við góðri þingsókn hvaðan-
æva af landinu, en Ungmennasamband
Austur-Húnvetninga annast undirbúning
og fyrirgreiðslu á Húnavöllum.
Sambandsaðilar UMFÍ eru 24, bæði
héraðssambönd og einnig nokkur einstök
félög, og hafa sambandsaðilar um 14
þúsund félaga innan sinna vébanda.
Meðal gesta á þinginu verða Þorsteinn
Einarsson íþróttafulltrúi ríkisins og Reyn-
ir Karlsson æskulýðsfulltrúi ríkisins.
12
SKINFAXI