Skinfaxi - 01.10.1971, Qupperneq 15
II11111111■11111111111
11111
I llllllllllllll llll IIIIIIllllll III■ 11111
llllllll■ll■l■lllllllllll■lllllllllll■lll■l■lllllllll■lllllll■■ll■lllllll■l■•■llllll■l■lll*l■lllll*llllll■llllt
I Stefán Petersen, framkvæmdastjóri 14. landsmóts UMFÍ
Ungmennafélögin
I aldrei öflugri en nú
'H';
— Þegar ég lít til baka til landsmótsins,
kemur mér fyrst í hug framúrskarandi
framkoma íþróttafólksins bæði í keppni
og utan, sagði Stefán Petersen, fram-
kvæmdastjóri 14. landsmótsins, þegar við
spurðum, hvernig hann teldi að mótið
hefði tekizt.
— Landsmótið sannaði líka, bætti
Stefán við, — að hægt er að halda fjöl-
menna útihátíð með menningarbrag, án
þess að henni sé spillt með drykkjuskap.
Þetta er hægt, ef vilji er fyrir hendi og
vel er að unnið. Mér er líka minnisstæð
sú vinsemd, sem maður mætti við undir-
búning mótsins, bæði innan héraðs og
utan. Allir vildu leggjast á eitt til þess að
mótið mætti takast sem bezt. Góð fyrir-
greiðsla bæjarstjórnar Sauðárkróks,
vinna Kvenfélagasambands Skagafjarðar,
mikilvægt sjálfboðaliðsstarf slysavarnar-
sveitar og hj álparsveitar skáta o. s. frv.
Ég get heldur ekki látið hjá líða að tjá
þakklæi mitt i garð þeirra mörgu ein-
staklinga, sem ég boðaði til að vera
starfsmenn og skiluðu starfi sinu af mik-
illi trúmennsku. Þessi einhugur um að
gera mótið sem glæsilegast, gladdi mann
og örvaði við allan undirbúning. Ég vil
þakka sérstaklega mótsstjóranum, Þor-
steini Einarssyni, og þeim Bryndísi Stein-
þórsdóttur og Stefáni Ólafi Jónssyni, sem
unnu ómetanlegt starf við starfsiþrótta-
keppnina.
Að lokum vil ég aðeins segja, að það er
von mín að 14. landsmótið hafi haldið
merki ungmennafélaganna vel á lofti,
sem hin fyrri mót. Það er mín skoðun, að
ungmennafélagshreyfingin hafi aldrei
verið öflugri en nú, og ósk mín er sú,
að hún megi enn dafna og eflast.
Skagfirðingar sáu ekki aðeins um undirbún-
ing og framkvæmd landsmótsins. Þeir voru
lika keppendur, og hér sést sveit jieirra ganga
inn á leikvanginn. (Ljósm. Gunnar)
SKINFAXI
15