Skinfaxi - 01.10.1971, Page 21
KNATTLEIKIR
KNATTSPYRNA
Knattleikjakeppnin hófst samkvæmt
timasetningu kl. 10:30 á laugardagsmorg-
un og léku fyrst lið UMSS og UMFK.
Leikið var á malarvellinum. Úrslit urðu
þau að UMFK sigraði 5—3.
Annar leikur var á nýja grasvellinum
og var það fyrsta knattspyrnan á þessum
glæsilega velli og léku lið UMSS og UMSK
vígsluleik. Úrslit urðu þau að UMSK sigr-
aði 11—1.
Úrslitaleikur keppninnar var leikinn á
grasvellinum. Áttust við lið UMSK og
UMFK og sigraði lið UMFK 1—0.
Þingeysku
stúlkurnar fagna
sigri eftir tví-
sýna keppni i
handknattleik.
STIG SAMBANDSAÐILA í
KNATTSPYRNU
1. UMFK 18 stig
2. UMSK 15 stig
3. UMSS 12 stig
4.-6. UMSE 6 stig
4.-6. HSH 6 stig
4.-6. UÍA 6 stig
HANDKNATTLEIKUR
1. leikur handknattleikskeppninnar fór
fram kl. 11:30 og áttust þar við lið UMFN
og UÍA, leikar fóru svo að UMFN sigraði
og var maikatalan 10—5.
Seinni leikur laugardagsins var leikinn
kl. 17:00 og léku þá UÍA og HSÞ. HSÞ
sigraði með 7 mörkum gegn 6.
HSÞ vann svo UMFN á sunnudag með
10—8 og sigraði þar með, — vann sína 2
leiki.
Dómarar voru Matthias Ásgeirsson og
Árni Sverrisson.
4.-6. UMSS 6 stig
4.-6. HSH 6 stig
KÖRFUKNATTLEIKUR
Lið Ungmennafélags Njarðvíkur, Ung-
mennasambands Borgarfjarðar og Hér-
aðssambandsins Skarphéðins höfðu á-
unnið sér rétt til úrslitakeppninnar á
landsmótinu. Keppnin var háð á stóra
pallinum.
Fyrst kepptu lið HSK og UMSB og sigr-
aði HSK með 44:29. Síðan kepptu UMSB
og UMFN og sigraði UMSB — 58:53 eftir
jafna keppni. Þessir tveir leikir voru
háðir á laugardaginn. Á sunnudaginn
sigraði svo HSK lið UMFN með 54:37.
HSK sigraði því í keppninni. UMSB varð
í öði'U sæti og UMFN i þriðja.
STIG SAMBANDSAÐILA í
KÖRFUKNATTLEIK
STIG SAMBANDSAÐILA f 1. HSK 18 stig
HANDKNATTLEIK 2. UMSB 15 stig
1. HSÞ 18 stig 3. UMFN 12 stig
2. UMFN 15 stig 4.-6. UMSS 6 stig
3. UÍA 12 stig 4.-6. HSH 6 stig
4.-6. UMSK 6 stig 4.-6. UMSK 6 stig
SKINFAXI
21