Skinfaxi - 01.10.1971, Page 34
■ III11111II1111
111 ■ 111 ■ i m 1111 ■ 111 ■ ■ ■ 1111111 • 111 ■■ ■ 111 ■ ■ ■ i ■ ■ i ■ ■ 11 ■ ■ 11 ■ i ■ ■ ■ ■ n 111 ■ 11 ■ 1111 ■ 11 ■ 111 ■ ■ i ■ i ■ ■ ■ 1111111 ■ ■ i ■ ■ i ■ i ■ i ■ 111111111 ■ ■ 111"" ■ ■ ■ ■ i ■' •" i1111 ■ i' i" 11: ■ ■ 111""""" 11
Sigurður Geirdal:
Danmerkurferð
UPs>CME(M»MAFÉl_AO .
ISLANDS
OANMERKUH- í
FEWO
1971
UMFÍ
Erlend samskipti íslenzkra æskulýðs-
og íþróttafélaga hafa stöðugt aukizt hin
síðari ár, enda hafa menn gert sér ljósa
grein fyrir því að margt er hægt að læra
af nágrönnunum og íslenzk ungmenni
hafa mikla ánægju af því að kynnast jafn-
öldrum sínum í öðrum löndum. UMFÍ
hefur ekki tekið þátt í þessari þróun sem
skyldi á undanförnum árum, en áhugi
félagsmanna var þó fyrir hendi til að
bæta úr. Framkvæmdastjóra samtakanna
var því falið að kynna sér erlend sam-
skipti UMFÍ á undanförnum árum og
komast að því hvar þræðirnir höfðu slitn-
að, en síðasta átak í þessum efnum var
utanferð frjálsíþróttamanna eftir 11
landsmótið að Laugum, og heppnaðist sú
ferð prýðisvel.
Á 17. sambandsráðsfundi UMFÍ, sem
haldinn var í Stapa í Ytri-Njarðvík í okt.
1970 flutti framkvæmdastjóri skýrslu sína
um erlend samskipti UMFÍ og fylgdi í
kjölfar hennar tillaga þess efnis að stjórn
UMFÍ skyldi falið að koma á utanför
íþróttafólks að loknu 14. landsmótinu og
ennfremur að kanna möguleika á því að
með í förinni yrðu áhugasamir unglingar
úr ungmennafélögunum sem gætu dvalið
í sumarbúðum með jafnöldrum sínum á
meðan á heimsókninni stæði. Tillaga
joessi var samjyvkkt einróma.
Næst var svo hafizt handa um að und-
irbúa förina, haft samband við ung-
mennafélög um öll Norðurlönd og kom
jrað fljótlega í ljós að Danmörk freistaði
mest, en þannig stóð á hjá Dönum að
ungmennafélög jreirra ætluðu að halda
landsmót sitt í Holstebro á Jótlandi tæp-
um þrem vikum seinna en landsmót
UMFÍ yrði háð á Sauðárkróki, og hentaði
það okkur prýðilega. Samningar við for-
ráðamenn danska mótsins tókust fljótlega
og seinna bættist við samningur við
íþróttafélögin í Odense um mót þar. Því
næst var að ákveða ferðaáætlun og afla
fjár. Okkur varð strax ljóst að ódýrasta
framkvæmdin yrði sú að taka á leigu
þotu fyrir fast verð og fylla hana síðan,
en joetta mundi hinsvegar kosta miklu
34
SKINFAXI