Skinfaxi - 01.10.1971, Blaðsíða 36
Framkvæmdastjóri mótsins Hans
J0rgen L0rup tók á móti okkur og leysti
hið snarasta úr hverri spurningu og hverj-
um vanda, og hélzt það svo allt mótið.
Aður en lengra er haldið er rétt að segja
frá því, að þegar farið var að leita eftir
sambandi við dönsku félögin snéri UMFI
sér til Jóns Þorsteinssonar íþróttakennara
í Spnderborg og brást hann vel við eins
og jafnan áður og talaði máli okkar við
forráðamenn félaganna með góðum ár-
angri. Jón og kona hans voru heiðursgest-
ir UMFI á 14. landsmótinu á Sauðár-
króki og vildi UMFI sýna þeim hjónum
á þann hátt þakklæti sitt fyrir margvís-
lega aðstoð við íslenzka ungmennafélaga
á liðnum árum. Sá aðili, sem Jón kom
okkur síðan í samband við og varð endan-
legur viðsemjandi okkar var Niels Ibsen,
formaður dönsku ungmennafélaganna
eða De danske Gymnastik og Ungdoms-
foreninger, eins og þau nefnast á dönsku,
skammstafað DDGU.
Niels Ibsen vildi allt fyrir okkur gera,
enda kom það greinilega í ljós að hann
hafði undirbúið komu okkar og dvöl frá-
bærlega vel og sýndi okkur rausnarskap
langt umfram alla samninga og langt um-
fram það sem hafði verið búizt við. Nielsi
var boðið af landsmótsnefnd 14. lands-
mótsins til Sauðárkróks og dvaldist hann
hér í nokkra daga ásamt konu sinni. Þau
eru öllum ógleymanleg sem kynntust
þeim, sannir ungmennafélagar og kraft-
miklir leiðtogar. Eru þessum tveim heið-
urshjónum hér með færðar alúðar þakkir
íslenzkra ungmennafélaga fyrir joeirra
joátt í þessari ánægjulegu utanferð.
Nú var mannskapurin kominn til
Holstebro, og eftir að hafa hvílt sig fór
fimmtudagurinn í það hjá flestum að
skoða sig um. Holstebro er um 25 jms.
manna bær og það var ekkert um að vill-
ast, að bærinn tók allur jvitt í hátíða-
höldunum. Allar götur voru skreyttar
fánum og blómum, kaupmenn höfðu sett
varning sinn út á götu og sérstakur af-
sláttur var á öllum vörum þeirra móts-
dagana, minjagripir um mótið og staðinn
voru hvarvetna boðnir. Allir jrátttakendur
í rnótinu höfðu fengið sérstaka möppu
afhenta, sem hafði að geyma allskonar
upplýsingar, matarmiða, strætisvagna-
miða, miða að íjrróttaleikvangi o. s. frv.
Þess má geta til gamans, að mótstjórnin
hafði á sínum vegum 85 strætisvagna til
flytja keppendur til og frá. Meðan kepp-
endur og aðrir skoðuðu bæinn, sátu far-
arstjórar fundi og kynntu sér nánar ein-
stöku atriði í framkvæmd mótsins, en
fararstjórn var skipuð Hafsteini Þorvalds-
syni, Sig. Guðmundssyni, Pálma Gísla-
syni, Hörn Harðardóttur og Sig. Geir-
dal.
Mótssetning fór fram kl. 19 á fimmtu-
dag og var þar sú glæsilegasta hópganga
íþróttamanna sem ég hef séð. Gengið var
inn á völlinn í sexfaldri röð hver flokkur
með sína fánabera eða fánaborgir. Sam-
tals voru í göngunni rúmlega 8000
íjrróttamenn, og áhorfendur voru 14 ])ús-
und. Islenzku þátttakendurnir voru í hin-
um fallega hvítbláa búningi USAH, en
skipt hafði verið um stafi þannig að nú
stóð á blússunni UMFÍ auk jress sem
merki UMFI var í barmi hvers og eins.
Innanundirbúningur var í sama lit, hvítur
að ofan og bláar buxur. Urðu margir til
þess að láta í Ijós aðdáun sína á merki
og búningi ungmennafélaganna. íjrrótta-
völlurinn var fánum skreyttur og lúðra-
sveit lék göngumars. Benedikta Dana-
])rinsessa var mætt fyrir hönd konungs-
fjölskyldunnar, og fannst J)á Dönum fátt
36
SKINFAXI