Skinfaxi - 01.10.1971, Qupperneq 37
vanta. Niels Ibsen setti mótið með stuttri
ræðu og síðan hófust fjölbreytilegar sýn-
ingar fimleikaflokka og þjóðdansara.
Næsta dag, föstudag, hófst svo keppnin
sjálf og var þá heldur en ekki líf í tusk-
unum. T. d. áttu að fara fram 400 hand-
knattleikir, sem ca 1200 leikmenn tóku
þátt í, rúml. 40 knattspyrnulið voru mætt
til leiks og 10.500 fimleikamenn og -konur
áttu að sýna listir sínar á þessum þrem
dögum. Þá voru fjölmörg leikrit og þættir
áhugaleikara sýndir þessa daga á leik-
sviðum utanhúss og innan.
En þar sem íslenzka íþróttafólkið var
eingöngu frjálsíþróttafólk, er bezt að
snúa sér örlítið nánar að þeim þætti.
Frjálsíþróttakeppnin var tvíþætt þannig
að föstudag og laugardag fór fram stiga-
keppni hinna einstöku héraðssambanda
en jafnframt unnu beztu einstaklingarnir
sér rétt til þátttöku á sérstöku hátíðar-
móti á aðalleikvangi Holstebro á sunnu-
dagskvöldið. Það kom fljótlega í ljós, að
íslenzku ungmennafélagarnir vora vel
undirbúnir fyrir keppnina, höfðu æft vel
margir hverjir fyrir landsmótið og náðu
nú langtum betri árangri en þeir höfðu
áður náð, enda aðstæður í sumum tilfell-
um miklu betri en þeir áttu að venjast.
Velgengni UMFÍ-liðsins þakka ég mest
hinu góða skapi og glaðværð, sem ríkti í
hópnum, það leikur sér enginn að því að
sigra lið, sem þannig gengur til leiks.
Enda fór svo, að UMFÍ leiddi stiga-
kejopnina eftir fvrri daginn
í kvennagreinum með 5737 stig
Árósar með 5560 stig
Horsens 5167 stig
í karlagreinum með 4534 stig
Randers 3832 stig
Árósar 3793 stig
Hafdls Ingimarsdóttir setti íslandsmet á há-
tiðarmótinu í Holstebro — 5,54 m. Myndin er
tekin i Danmerkurferðinni.
(Ljósm. Sig Geirdal)
Einstakar greinar fóru þannig:
Föstudagur.
KONUR 100 m. hlaup.
1. Anni Möller Horsens 13.1
2. Edda Lúðviksdóttir UMFÍ 13.3
3. Björk Ingimundard. UMFÍ 13.4
4.. Anette Brönsholm Árósar 13.4
Kringlukast. UMFÍ
1. Halldóra Ingólfsdóttir 30.13
2. Tove Petersen Fredr.b. 29.31
3. Hanna Nielsen Randers 29.12
4. Guðrún Ingólfsdóttir UMFÍ 28.86
200 m. hlaup. Árósar
1. Annette Brpnsholm 26.7
2. Anni Möller Horsens 26.8
3. Björk Ingimundardóttir UMFÍ 26.9
4. Edda Lúðvíksdóttir UMFI 27.1
SKINFAXI
37