Skinfaxi - 01.10.1971, Blaðsíða 45
hækkað úr t. d. 70 í 90 slög, og það getur
tekið allt að því eina mínútu eða lengur,
að það komist aftur niður í eðlilegan púls.
Þetta er einfalt og afar handhægt fyrir
þá, sem vilja fylgjast með því, í hve góðri
æfingu eða lélegri þeir eru. Ekki er ólík-
legt að þið getið, ef þið framkvæmið
þessa athugun daglega jafnframt því sem
þið æfið úthaldsæfingar, séð að æfingin
■— þol ykkar — eykst með hverjum degi
sem líður, jrví púlsinn lækkar á hverjum
morgni og verður fljótari að jafna sig.
Víða hafa farið fram miklar rannsóknir
á jressu sviði, ekki hvað sízt hjá frænd-
um okkar á hinum Norðurlöndunum. Hjá
Svíum var t. d. eitt sinn talinn púlsinn hjá
öllum, sem komu í mark eftir 30 km.
skíðagöngu 5 mín., 15 mín. og 30 mín.
eftir að þeir komu í mark. Tölurnar, sem
komu fram voru all mismunandi, en hér
skulu aðeins teknar tölur 1. og 2. manns
í keppninni. Sigurvegarinn fékk tölumar
144 — 92 — 78 en sá, sem annar varð
fékk 156 — 110 — 102. Allir aðrir fengu
talsvert lakari útkomu. En á milli 1. og 2.
manns í mark var aðeins sára lítill munur
á tíma, um 5 sek., og jrví jrótti handhæg-
ast að skýra þennan mun á tölunum, sem
talinn er vera nokkuð mikill, með því að
göngutækni sigurvegarans hafi verið
svona áberandi miklu betri. Við frekari
úrvinnslu þessara gagna jróttu tölur jrær,
sem fengust eftir 30 mín. vera mikilvæg-
astar og gefa mesta vísbendingu urn
j^jálfunarástand jjátttakendanna. En jafn-
framt þótti það sýnt að tækni sú sem
beitt var af keppendunum hefði mikið að
segja ,enda voru þeir yfirleitt Iægstir eftir
30 mín., sem bezt gengu.
Ef íþróttamaður ætlar sér að reyna að
keppa við þá beztu í íþrótt sinni, þá get-
ur hann lesið á púlsslögum sínum, hvern-
ig hann er á vegi staddur. Ef púls hans er
enn í 55—60 slögum, eftir æfingar hans
fyrir keppnina, j)á hafa æfingar hans ekki
verið nægilega erfiðar og hann er ekki
nógu vel æfður fyrir keppnina. Hafi púls-
inn hinsvegar verið 35—45 slög um
nokkurt skeið, en hækkar allt í einu aftur,
þrátt fyrir jafnar eða auknar æfingar, upp
í 50—60 slög og stöðvast jrar, jrá er ekki
allt eins og jrað á að vera. Slíkt getur
verið merki Jress að æfingarnar hafi verið
of erfiðar, svokölluð ofþjálfun hafi komið
fram; að sjúkdómur sé að breiða um sig
í líkama hans; eða hreint og beint að
svefn og hvíld hafi verið of lítil með tilliti
til erfiðis æfinganna. Undir öllum kring-
umstæðum ber að minnka æfingarnar og
leita til læknis, ef slíkt kemur fram.
Allar æfingar verður að byggja jrannig
upp, að púlsinn fari smátt og smátt lækk-
andi en taki ekki stökkbreytingum. Síðan
er reynt að halda hinum lága púlsi með
æfingum eða að lækka hann nokkuð enn
allt keppnistímabilið, ef um keppnisfólk
er að ræða. En þegar síðan er slakað á
erfiði æfinganna, eða jreim fækkað, er
eðlilegt að púlsinn hækki að nýju og að
sú þróun haldist Jrangað til æfingarnar
verða enn á ný erfiðari.
íþróttafólki, sem æfir íjrróttir, sem
krefjast mikils úthalds — Jrols, er Jrað
sérstaklega mikilvægt að fylgjast vel með
púlsi sínum. Þeir ættu Jrví að hafa jri
föstu venju að telja púlsinn reglulega og
jrá helzt oft í viku.
Og allir ættu að færa niðurstöður taln-
inga púlsins inn í bók, svo Jrær gleymist
ekki og hægt sé að fylgjast náið með Jrví,
sem er að gerast í líkama þeirra og þá í
hjartanu sérstaklega.
Guðmundur Þórarinsson.
SKINFAXI
45