Skinfaxi - 01.10.1971, Síða 46
Frá starfi
ungmennafélaganna
miiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimmiimiiiiiiiiiiiimiiimiiimmimimmimiiiimmiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiii
Kæðarar Þróttar sigra í róðrarkeppni sjó-
mannadagsins í Keflavik.
Ungmennafélagið Þróttur á Vatnsleysu-
strönd hefur aukið starf sitt verulega að
undanförnu, en í sumar voru 10 ár liðin,
síðan félagið var endurreist. Símon
Rafnsson, formaður Þróttar, sagði okkur
tíðindi af félagsstarfinu, er hann kom í
aðalstöðvar UMFÍ í sumar.
Félagið gengst fyrir handknattleiksæf-
ingum á vetrum, og fá Þróttarar inni í
íþróttahúsi Njarðvikinga til æfinga. Fé-
lagið ætlaði að taka þátt í Reykjanes-
mótinu í handknattleik í ár, en vegna
stirðbusaháttar handknattleiksráðs
Hafnarfjarðar var félaginu bolað frá
þátttöku. Sú íþróttagrein, sem stendur í
hvað mestum blóma hjá félaginu, er þó
róðraríþróttin, og mættu önnur félög
sannarlega taka sér það til fyrirmyndar
i þeim efnum. Sveit félagsins hefur sex
sinnum keppt í róðri á sjómannadaginn
i Keflavík, og sigraði nú í vor i fjórða
sinn i keppninni.
Undanfarið hefur verið unnið að end-
urbótum á félagsheimilinu, sem Þróttur
er eignaraðili að. Á vetrum stendur félag-
ið jafnan fyrir fullveldisfagnaði 1. des-
ember.
Þá efndi félagið til landgræðsluferðar
i vor, og tóku 30 manns þátt í henni. Sáð
var grasfræi og áburði í 14 hektara svæði
í grennd við Voga.
íþróttafélagið Völsungur á Húsavík sigraði 1
3,-deiidarkeppni íslandsmótsins í knattspyrnu.
Á myndinni sjást Völsungar taka við 3.-deild-
arbikarnum.
46
SKINFAXI