Skinfaxi - 01.06.1973, Blaðsíða 5
28. sambandsþing UMFÍ
28. sambandsþing Ungmennafélags ís-
lands var haldið í Haukadal í Biskups-
tungum dagana 23. og 24. júní 1973. í
upphafi minntist formaður tveggja for-
ystumanna úr ungmennafélagshreyfing-
lumi sem látist hafa á liðnu ári, þeirra
Skúla Þorsteinssonar fyrrum námsstjóra
°g Þórarins Sveinssonar kennara á Eið-
una. Að lokinni sehiingarræðu formanns,
Hafsteins Þorvaldssonar, voru kosnir
starfsmenn þingsins. 1. forseti var Jó-
hannes Sigmundsson og 1. þingritari
Arnór Karlsson. Formaður reifaði skýrslu
stjornarinnar sem fyrir þinginu lá. Gjald-
keri UMFÍ, Gunnar Sveinsson, gerði
grein fyrir reikningum. Þingið sátu 75
fulltrúar frá 24 sambandsaðilum auk
stjórnar og gesta.
Eftirtaldir gestir voru viðstaddir þing-
setninguna: Þorsteinn Einarsson íþrótta-
fulltrúi ríkisins, Hermann Guðmundsson,
framkvæmdastjóri ÍSÍ, Reynir Karlsson,
asskulýðsfulltrúi ríkisins, Hannes Þ. Sig-
urðsson, stjórnarmaður ÍSÍ, Daníel Ágúst-
Uiusson, fulltrúi í íþróttanefnd ríkisins,
sr- Eiríkur J. Eiríksson, fyrrverandi for-
'Uaður UMFÍ, Gísli Andrésson bóndi á
Heðra-Hálsi í Kjós og Sigurður Greipsson
1 Haukadal.
Þrír fyrrverandi stjórnarmenn UMFI
v°ru sæmdir gulhnerki samtakanna, Gísli
Andrésson bóndi á Neðra-Hálsi, Stefán
Ölafur Jónsson og Ármann Pétursson.
Sú breyting var nú gerð á lögum UMFÍ
að fjölgað var í sambandsstjórn úr 5
mönnum í 7. Sambandsstjórnin kýs svo
úr sínum hópi til eins árs í senn tvo
menn er skipi framkvæmdastjórn ásamt
framkvæmdastjóra.
Kjömefnd lagði til að sambandsstjóri,
Hafsteinn Þorvaldsson yrði endurkjörinn.
Ekki komu fram aðrar tillögur og var
kjöri Hafsteins fagnað með löngu lófa-
taki. Þá lagði kjörnefnd fram tillögu um
13 menn og skvldi úr hópi þeirra kjörnir
6 meðstjórnendur. Valdimar Óskarsson
gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Ekki
komu fram fleiri tillögur. Kosnir voru:
Sig. R. Guðmundsson (UMSB), Guðjón
Ingimundarson (UMSS), Þóroddur Jó-
hannsson (UMSE), Björn Ágústsson
(UÍA), Guðmundur Gíslason (UMSK) og
Gunnar Sveinsson (UMFK). Varamenn:
Bergur Torfason (HVÍ), Guðm. Guð-
mundsson (HSK), Magnús Ólafsson
(USAH) og Elma Guðmundsdóttir (UÍA).
UMFÍ um
landhelgismálið
28. sambandsþing UMFÍ, haldið í Hauka-
dal 23. og 24. júní 1973, leggur áherzlu á
mikilvægi órofa samstöðu íslenzku þjóð-
arinnar í landhelgismálinu og telur frá-
leitt það hernaðarlega ofbeldi, er Bretar
sýna i íslenzkri landhelgi. Þingið felur
stjórn og framkvæmdastjóra að kynna
landhelgismálið hliðstæðum æskulýðs-
samtökum erlendis.
SKINFAXI
5