Skinfaxi - 01.04.1974, Side 18
SUND
Breski „skólinn” endurnýjaður
í Norðurálfu eru flest stórmót í sundi
háð á sumrin og haustin nú orðið. „Sig-
urvegarar sumarsins verða til að vetr-
inum“, sagði hinn frægi sænski sundkappi
Gunnar Larsson sem vann tvenn gull-
verðlaun á síðustu Olympíuleikum. Þetta
eru víst orð að sönnu, því að ekki er við
því búist að neinn nái verulegum árangri
á mótum sumarsins nema hann hafi æft
kappsamlega allan veturinn. íslenskt
sundfólk er fyrir löngu farið að haga æf-
ingum sínum í samræmi við þessar að-
stæður. I sumar bíða þess mörg og stór
verkefni, svo sem íslandsmót, Norður-
landsmót unglinga, Evrópumeistaramót
o. fl. A þessum vetri sem nú er að líða
hafa augu sundáhugamanna mjög beinst
að sundfólki í Bretlandi og Ástralíu og
er búist við að það láti mjög að sér kveða
á stórmótum sumarsins.
Bretland
Einu sinni var talað um að breskt
bringusundsfólk myndaði sérstaka stefnu
eða „skóla“ í sinni grein. Þá bar nafn
Anitu Longborough hæst. Þessi skóli lifir
nú mikla endurnýjunartíma. Frægasti
fulltrúi hans nú er David Wilkie, heims-
meistari í 200 m. 1973 á 2.19,28 mín.
Hann á nú heimsmetið í þessari grein.
En nú er hann ekki lengur einn á báti.
Á bresku samveldisleikunum í Christ-
church á Nýja-Englandi í vetur sigraði
breskt sundfólk í öllum bringusunds-
greinunum. Mesta athygli vakti David
Leigh frá Liverpool. Hann sigraði Wilkie
í 100 m. á 1.06,52 mín., og var aðeins 3/10
sek á eftir Wilkie í 200 m. (2.24,42).
Þriðji maður var einnig Breti, Paul Nais-
by'
Bresku stúlkurnar komu þó meira á
óvart. Christine Gaskell vann 100 m. á
1.16,42, en Patricia Beaven frá Wails
sigraði í 200 m. á 2.43,11 mín., og meðal
þeirra sem urðu að láta í minni pokann
var Olympíusigurvegarinn Beverly Whit-
field frá Ástralíu.
Ástralía
í Ástralíu eru auðvitað hausavíxl á árs-
tíðunum miðað við Norður-Evrópu. Þeir
verða að æfa af kappi á sínum sumar-
tíma. í byrjun ársins þegar fór að sumra
hjá þeim, settu þær Jennifer Turall og
Susan Lockyer heimsmet í 800 m. og
1500 m. skriðsundi og vöktu heimsat-
hygli. Á samveldisleikjunum tókst þeim
hins vegar ekki sérlega vel upp, þó að
Ástralíubúar krefðust þess að þær tækju
við hlutverki Shane Gould. Athyglin
beinist nú í auknum mæli að Sonju Gray,
sem er hækkandi stjarna í styttri sund-
greinunum. Á samveldisleikjunum synti
hún 100 m. skriðsund á 59,07 sek. í boð-
18
SKINFAX!