Skinfaxi - 01.04.1979, Blaðsíða 3
SKINFAXI
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXX árgangur —2. hefti 1979
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Kristjánsson. — Út koma 6 hefti á ári.
„Hvaö get ég gertfyrir félagiö?”
Skinfaxi hefur tekið sér það bessaleyfi að birta hér,
formálsorð þau sem rituð eru í ársskýrslu UMSB þar
sem telja má að þau eigi víðar við. Formálsorð þessi
ritar Eiríkur Jónsson fyrrverandi sambandsstjóri
UMSB. gk.
Við áramót er oft staldrað við og horft til baka. Reynt er að meta störf liðins árs og
um leið reynt að gera sér grein fyrir því sem framundan er. Þegar litið er yfir síðasta
starfsár UMSB kemur í ljós að allmikið starf hefur verið leyst af hendi en jafnframt er
margt ógert.
Það sem ég held að fyrst og fremst sé að í starfi UMSB er það að starfið er of ein-
hæft, því eins og skýrsla þessi ber með sér tengist allt starfið meira og minna íþróttum.
Ekki má skilja orð mín svo að ég telji íþróttunum gert of hátt undir höfði heldur hitt að
e8 tel það skaðlegt með tilliti til framtíðarinnar ef félagslegi þátturinn gleymist. Ég held
að sú deyfð og það áhugaleysi sem virðist almennt ríkjandi gagnvart almennri félags-
málafræðslu eigi eftir að koma sambandsfélögunum og sambandinu sjálfu í koll á þann
hátt að erfiðara reynist með ári hverju og fá menn til forystuhlutverka. Ég álít næsta
öruggt að öflug fræðslustarfsemi skili sér í öflugu starfi.
Það er ánægjulegt, nú á tímum verðbólgu og peningaæðis, hve margir eru enn fúsir
uð gefa bæði tíma og fé til reksturs sambandsins, en það er líka ljóst að án þessarar
fórnfýsi yrði starfsemi sambandsins hvorki fugl né fiskur.
Til þess að heilbrigt og öflugt starf geti þróast innan einstakra félaga á okkar sam-
bandssvæði er mikilvægt að hver félagi sé tilbúinn að leggja nokkuð að mörkum til
starfsins og að menn hugsi frekar sem svo: „Hvað get ég gert fyrir félagið”, en ekki
.,Hvað getur félagið gert fyrir mig”. Ef slíkur hugsanaháttur yrði ríkjandi gæti UMSB
og reyndar ungmennafélagshreyfingin í heild litið björtum augum til framtíðarinnar.
Eirikur Jónsson.
SKIIMFAXI
3