Skinfaxi - 01.04.1979, Blaðsíða 22
Núverandi formaður félagsins er Helgi Stefáns-
son, Vorsabæ II.
Umf. Hekla
hélt upp á afmæli sitt í Hellubíói og hófst veislan
með kafftdrykkju. Á borðum hjá Heklumönnum
var þriggja hæða afmælisterta, girnileg á að líta og
enn betri á bragðið. Meðal skemmtikrafta var visna-
þáttur sem tveir miðaldra menn tóku þátt í undir
öruggri stjórn Sigurðar Óskarssonar. Mjög góður
rómur var gerður að vísnaþættinum og margar
snjallar stökur heyrðust í Hellubíói þetta kvöld.
Núverandi formaður félagsins er Páll G. Björns-
son, Hellu.
Umf. Ingólfur í Holtahreppi
hélt upp á 70 ára afmæli sitt að Laugalandi. For-
maður félagsins setti afmælishófið og stjómaði því.
Afmælishóf þetta fór fram með mjög svo hefð-
bundnum hætti. Almennur söngur, leikþáttur en
auk þess flutti Benedikt í Nefsholti, einn af stofn-
endur félagsins, endurminningar sínar. Um kvöldið
var svo stiginn dans.
Núverandi formaður félagsins er Olgeir Engil-
bertsson, Nefsholti.
Umf. Baldur Hraungerðishreppi
hélt upp á afmæli sitt i Þingborg og var mjög fjöl-
mennt. Ágúst Þorvaldsson flutti hátíðarræðu,
Gunnar Halldórsson flutti minni félagsins og auk
þess var sýndur leikþáttur, söngur og fleira. Að
lokum var dansað fram eftir nóttu.
Núverandi formaður félagsins er Sverrir Ágústs-
son, Brúnastöðum.
Umf. Merkihvoll í Landssveit
hélt upp á 50 ára afmæli sitt að Laugarlandi s.l.
sumar, og hófst hátíðin með ýmsum skemmti-
atriðum. Auk þess var drukkið kaffi, með góm-
sætum kökum. Sérstaka athygli vakti söngur fjög-
urra ungmennafélaga undir stjórn önnu Magnús-
dóttur.
Núverandi formaður félagsins er Kjartan Magnús-
son, Hjallarnesi.
Vinningshafi í happdrætti UMFÍ 1978 lét lengi ekki á sér kræla en svo kom hann frá Akureyri og heitir
Guðrún H. Stefánsdóttir, Kringlumýri 2.
Skinfaxi óskar Guðrúnu til hamingju og vonar að hún megi njóta vinningsins vel og lengi.
22
SKINFAXI