Skinfaxi - 01.04.1979, Qupperneq 6
Frá Umf. Mána
Sælir félagar!
Langt er síðan tíðindi hafa borist hér að
austan. Ýmislegt gerist þó í starfinu hér
hjá okkur í Mána. 15. feb. síðastliðinn
var haldinn aðalfundur félagsins. Var
hann nokkuð vel sóttur (28) og virtist
hugur í fundarmönnum. Á miðjum fundi
var skipt í 2 starfsnefndir sem skiluðu svo
áliti um helstu verkefni næsta starfsárs.
Var þetta nýnæmi hjá okkur og gafst
mjög vel. Fram komu nokkrar athyglis-
verðar hugmyndir um starfíð. í lok fund-
arins voru svo kosningar.
Að lokum nokkur orð um félagsmerkið
okkar. Höskuldur Björnsson listmálari,
fæddur og uppalinn hér í Nesjum, teikn-
aði merki félagsins fyrir 40 árum síðan.
Einhverra hluta vegna þá glataðist þetta
merki. í 3 síðustu ár höfum við leitað án
árangurs. Svo var það fyrir nokkrum
dögum að frumeintak af merkinu fannst.
Birtist einum félagsmanninum í draumi
og gat sá gengið að merkinu á þeim stað
sem það birtist honum i draumnum.
Óneitanlega ánægjuleg málalok það. —
Bestu kveðjur.
Stjórn Mána skipa nú:
Sjöfn Sigfúsdóttir, Miöfelli furmaður.
Ásmundur Gislason, Nesjaskóla rítari.
Krístín Egilsdóttir, Bjamanesi gjaldkeri.
Starf félagsins síðastliðið ár var
nokkuð. Haldin var fjölskylduskemmtun,
spilavistir voru 2, opið hús í samkomu-
húsinu var einu sinni í viku fram í apríl en
í haust var húsið ekki í notkun vegna
endurbóta. Árlega höfum við áramóta-
brennu og fara félagar úr Mána um sveit-
ina og hreinsa spýtnabrak í kringum bæ-
ina. Er af þessari starfsemi okkar talsverð
landhreinsun. Jólakortasala, sala á happ-
drættismiðum UMFÍ og fleira smálegt
mætti einnig nefna. Á síðasta ári girtum
við trjágarð í eigu félagsins. Var fyrst
plantað í hann fyrir u.þ.b. 50—60 árum.
Nýjasta í okkar starfi er svo danskennsla.
Kennt er tvisvar í viku. Þátt taka tæplega
20 pör.
ísakstur var fyrirhugaður en því miður
hlánaði þegar keppnin átti að fara fram
svo hætta varð við.
F.h. Umf. Mána,
Ásmundur Gíslason ritari.
Sjónvarpskeppni FRÍ 1979
Austfirðingar, Vestfirðingar og börn af
Vesturlandi vöktu mikla athygli fyrir
góða frammistöðu í Sjónvarpskeppni FRÍ
sem fram fór 31. mars. í stigakeppni milli
kjördæma urðu úrslit þessi:
1. Reykjavík
2. Austurland
3. Vesturland
4. Vestfirðir
5. Norðurl. eystra
6. Suðurland
7. Reykjanes
8. Norðurland vestra
72.5 stig.
60 stig.
59 stig.
56 stig.
41 stig.
25 stig.
22.5 stig.
13 stig.
Skinfaxi óskar þátttakendum til ham-
ingju með árangurinn og hvetur þá til
dáðd í framtíðinni.
6
SKINFAXI