Skinfaxi - 01.04.1979, Blaðsíða 11
álita, og sé um beinbrot að ræða er nauð-
synlegt að festa brotið eftir föngum þann-
ig að það sitji í réttum skorðum og hreyf-
ist sem allra minnst. í slíku tilfelli er
naumast hægt að komast hjá verulegri
afturför hjá íþróttamanni.
TOGNUN
Tognun kemur við snöggt átak á
liðband eða vöðva. Nokkrir bandvefs-
þræðir eða vöðvafrumur slitna og líf-
færið verður veikara. Æðar fara í sundur
og einhver blæðing verður í kringum
áverkann. Blóðið brýtur sér leið inn í að-
liggjandi vefí og sést gegnum húðina sem
blár blettur, mar. Þetta blóð verkar nokk-
uð ertandi á vefína og veldur bólgu og
bjúgmyndun á staðnum. Eftir 1—2 daga
snýst þessi þróun við. Bólgan og bjúgur-
inn minnkar, blóðið eyðist smátt og smátt
og nýr bandvefur myndast i stað slitnu
bandvefsþráðanna og vöðvafrumanna.
Allan tímann eru eymsli í meiðslinu,
einkum við álag. Það er í rauninni heppi-
legt, því mikilvægt er að verja staðinn
fyrir álagi þar til meiðslið er fullgróið.
Það tekur misjafnlega langan tíma, venju-
legaumávikur.
Við meiriháttar álag getur liðband, sin
eða vöðvi slitnað alveg. Við það verða
einkenni öllu meiri en við venjulega togn-
un. Stundum er hægt að greina þetta strax
við skoðun, en oft er óljóst í upphafí
hversu mikill áverkinn er. Sársauki þarf
ekki að vera meiri en við tognun. Hins-
vegar batna einkennin hægar. Ef einkenni
eftir svona ákverka hafa ekkert batnað á
3—4 dögum er rétt að láta athuga málið
nánar með tilliti til slitins liðbands eða
brots. Slitið liðband þarf oft að sauma
saman ef varanlegur bati áað fást.
Góð upphitun fyrir keppni er mikilvæg
til að fyrirbyggja tognun, en þetta er ekki
alltaf auðvelt hér á okkar kalda landi, þar
SKINFAXI
sem íþróttamót eru haldin í misjöfnum
veðrum.
MEÐFERÐ TOGNUNAR
Fyrsta meðferðin er mikilvæg. Hún
beinist að því að minnka blæðinguna í að-
liggjandi vefí og bólguviðbrögðin sem
fylgja meiðslinu. Sé henni beitt með
árangri má reikna með að fullur bati náist
miklu fyrr en ella.
Bráðameðferð við tognunum greinist í
fjóra þætti:
1. Kæling meidda svæðisins.
Hægt er að nota kalt vatn, ísbakstra,
snjó eða kalt járn. Til eru sérstakir kæli-
pokar úr plasti, sem hægt er að geyma við
hvaða hitastig sem er og eru þætilegir til
að hafa með sér á íþróttavöllinn. Einnig
11