Skinfaxi - 01.04.1979, Qupperneq 15
eins og safnamál, flóttann úr sveitum, bindindismál,
hersetu, verkalýðsmál, listir, fræðslumál, íþrótta-
mál, bókmenntir, og svo mætti lengi telja.
Auðvitað var sjálfu ungmennafélagsstarfinu gerð
skil líka. Stuttar fréttir voru birtar úr félögum sem
víðast af landinu og sagt frá starfi heildarsamtak-
anna. Má segja að þessum þætti sé vel sinnt af nú-
verandi ritstjórn.
Ég hefði gjarna viljað starfa að útbreiðslu Skin-
faxa fyrir þrjátíu árum, og ég kýs að starfa að henni
nú enn um sinn. En gott væri nú að fá eitthvað út-
gengilegra í hendurnar.
í dag eru öll ofantalin málefni frá 1945 jafn
brennandi og þá. Og ýmis hafa bætst við; orkumál,
mengunarvarnir, popp. íslenskur iðnaður, verndun
fiskistofna og margt margt fleira. Já hreint út sagt:
mér finnst hreinn óþarfi að hafa Skinfaxa jafn
þunnan á vangann og hann er um þessar mundir.
Þess ættu þeir menn að minnast, sem vilja út-
breiðslu hans sem mesta. Sigurjón Bjarnason.
Næst gefum viö orðið ágætum ungmennafélaga úr Borgarnesi en hann vill eigi láta
nafns síns getið. Skinfaxi þakkar góð orð í sinn garð en þó sérstaklega það efni sem
H.J. lætur fylgja með tilskrifi sínu.
Með kveðju og bestu óskum til Skinfaxa ásamt
von um að í framtíðinni muni ungmennafélögin
sinna góðum málefnum, eins og þau hafa raunar
alltaf gert. Skinfaxi er snoturt blað, prentað á góðan
pappír og frágangur allur mjög vandaður, en efnið
mætti vera fjölbreyttara en það er nú. Það mætti
t.d. flytja fréttir af fleiri störfum ungmennafélag-
anna en þeim sem eru á iþróttasviðinu, þótt auðvitað
sé sjálfsagt að hafa íþróttirnar með. Ég ætiast ekki
endilega til þess, að þessi della sem fylgir með bréf-
inu verði birt, það væru nú kannske einum of langt
gengið. Allavega: Engin nöfn.
YkkarH.J.
Félagslíf
Við héldum áðurfyrr
að félagslíf
væri aðsitja við varðeld ogsyngja
um vináttu og bræðralag,
bera hvers annars byrðar
í blíðu ogstriðu,
bregða á leik
svo dagarnir yrðu léttari en ella.
En okkur varsagt
að við ættum fyrst ogfremst að keppa.
Efvið stóðum okkur vel
reigðu forystumennirnir sig
ogsögðu:
Vér vinnum mikið oggott starf.
Vér erum stoltir af félagi voru.
Vér erum stoltir af þjóð vorri.
Að hverju erum við að keppa?
Og af hverju eru þessir karlar svona
ánægðir með sig?
Formaður UMFÍ hefur oft verið ,,á leiðinni” á þing
sambanda vitt um landið og farkostirnir verið með
ýmsum nöfnum en númerið heldur sér alltaf X-36.
Þessi mynd er tekin 1971 og trúlega eru það Þingey-
ingar sem hann er hér á leið til.
Á leiðinni
Formaður Ungmennafélagsins
var á leiðinni
á ftmmtugasta og sjöunda þing UMSB.
Fyrir sólarupprás
á febrúarmorgni
beið hann þess að sjá Borgarfjörðinn opnast.
En hann sá ekki lit himinsins
eða línur fjallanna,
því augu hans voru bundin við brúarstöplana
íftrðinum.
SKINFAXI
15