Skinfaxi - 01.04.1979, Side 26
Þingfulltrúar að störfum.
26
stöðugt, en HSK heldur enn fast við þennan gamla
sið, hversu lengi sem það verður nú, það er skoðun
undirritaðs að þinghald megi að skaðlausu stytta í
einn dag. Og það fer að verða tímabært að hugleiða
hvort ekki sé timabært að huga að breytingum á hinu
hefðbundna skipulagi, bæði til þess að gera það
meira áhugavekjandi og svo að ná fram almennari
virkni fulltrúa. Fjölmargar tillögur voru bornar
undir atkvæði þingfulltrúa, flestar voru samþykktar
en einstaka felld.
Meðal tillagna sem samþykktar voru má nefna til-
lögur um að HSK gengist fyrir rekstri sumarbúða á
komandi sumri, að skipuð verði afmælisnefnd vegna
70 ára afmælis HSK 1980, að út komi mótaskrá fyrir
allt árið í apríl, að íþróttafólk keppi undir nafni síns
eigins félags nema í stigakeppnum sambanda og að
lokum má nefna tillögur um fjárhagsáætlun upp á
tæplega 9 milljónir króna. Skinfaxi æddi um og
reyndi að festa á filmu það sem á filmu er hægt að
festa, á milli þess sem hann kýldi vömbina og tók
þátt í störfum þingsins. Afrakstur þessarar filmu
sést svo hér með.
Ritstjóri Skinfaxa var kosinn matmaður þingsins.