Skinfaxi - 01.10.1979, Blaðsíða 5
Að gömlum og góöum sið var sun^ið við raust en sumir voru þó ot' önnum kat'nir við þingmálin eins oj» sjá
niá. Við netnum en^in nöt'n.
þinginu kveðjur og færðu Hafsteini sér-
stakar þakkir fyrir starf hans í þágu
UMFÍ. En auk þeirra fluttu þeir Viktor
Guðlaugsson skólastjóri að Stórutjarna-
skóla og Þórður Jónsson, Laufahlíð
þinginu starfskveðjur.
57 fulltrúar af 71 sem rétt áttu til setu á
þinginu voru mættir og komu þeir frá 16
samböndum og félögum með beina aðild.
A þessum fyrri degi var flutt skýisia
stjórnar og reikningar, mál lögð fyrir
þingið og rædd og um kvöldið störfuðu
nefndir þingsins, 4 að tölu. Fjárhags-
nefnd: form. Björn Ágústsson (UÍA),
Allsherjarnefnd: form. Birgir Karlsson
(UMSB) og Fræðslu- og útbreiðslunefnd:
form. Guðmundur Guðmundsson (FISK).
Langviðamesta málið lá fyrir landsmóts-
nefnd, eða reglur fyrir landsmót UMFÍ
1981.
Á sunnudeginum héldu nefndir störfum
sínum áfram fram undir hádegi en siðan
tóku við nefndaálit og að þeim loknum
fóru fram kosningar í stjórn UMFÍ. í for-
mannskjöri var aðeins einn, Pálmi Gísla-
son UMSK og var því rétt kjörinn
formaður UMFÍ. Meðstjórnendur 6 að
tölu voru kosnir leynilegri kosningu og
voru þessir í kjöri.
AKSi m RI ANI)I:
Dirtrik Haraldsson HSK
Finnur Ingólfsson USVS
RKYKJANF.SOf, RVÍK:
Hafsleinn Jóhannesson UMSK
Haukur Hafsteinsson UMFK
SKINFAXI
5