Skinfaxi - 01.10.1979, Qupperneq 20
Næsta morgun hófst svo dagskráin,
kenndi þar ýmissa grasa. Farið var á þjóð-
dansahátíð þar sem ýmislegt skemmtilegt
var að sjá og bar á góma. Voru þar þjóð-
dansahópar víða að komnir allt frá Grikk-
landi og norður til Sama. Ríkti þar
skemmtileg stemmning, en þjóðdansar og
tónlist á mjög sterk ítök meðal almenn-
ings á Norðurlöndunum, sem við þekkj-
um ekki eins hér á landi.
Einnig var farið í verslunarferð til
Kokkola og ekið um sveitir landsins, en
eins og flestir vita þá var ekki víðsýnt, þar
sem ,,græna gullið” var hvar sem auga
var litið. Sums staðar hafði því verið rutt
til og risu þar alís kyns mannvirki, allt frá
olíuhreinsistöðvum til sjúkrahúsa. Voru
þessi mannvirki skoðuð og álit manna
Iátið falla um þau. Meðal þessara mann-
virkja var ein stærsta ostagerðarverk-
smiðja á öllum Norðurlöndunum, þar
gafst þátttakendum kostur á að kynnast
íslenskri sumarveðráttu, en það var nefni-
lega í kæli ostagerðarinnar, sem hitastigið
var svipað og við þekkjum hér um vor og
sumarmánuðina.
Finnland hefur löngum verið nefnt
,,1000 vatna landið” og það var ekki fyrr
en seinasta daginn sem við fengum að
kynnast því. Þá var farið í náttúruskoðun
og eitt tærasta fljót NF-Finniands
skoðað. Þótti mörgum þetta hálf vafasöm
ganga og voru sumir hverjir orðnir all
blautir, en eitt var þó víst að mýið gerði
ekki upp á milli manna hvort sem þeir
voru blautir eða ei. Allt fór þetta þó vel og
minnast menn þessarar ferðar sennilega
vel og lengi.
Ekki voru menn alltaf á ferð og flugi,
þvi seinnipart dags og á kvöldin dvöldu
menn í Flircikoski og gerðu sér ýmislegt til
skemmtunar. Sundlaug og sauna var á
staðnum, sem var óspart notað. íslend-
ingum þótti þó laugin all köld og fannst
jafnvel enn skárra að skella sér í á sem
rann þarna framhjá, þótt mórauð væri
og full af flugnalífi.
Á kvöldin var fundið upp á ýmsu,
málin rædd á hinni ágætu skandinavisku
og má segja að allir hafi getað tjáð sig í
orðum eða verki, um það sem þeim fannst
um hlutina. Þannig að tungumálið varð
ekkert vandamál sem ekki var hægt að
yfirstíga.
Haldnar voru kvöldvökur þar sem
ýmislegt kom upp, m.a. voru haldnar
landskeppnir i hinum furðulegustu
greinum, kom ísland yfirleitt vel út úr
þeim viðureignum.
Nú var liðið að lokum þessarar viku og
var þá borinn fram fínn matur, og
skemmtun á eftir þar sem við, m .a. kynnt-
um íslenskt baðstofulíf með JóHannes
Sigmundsson í fararbroddi og rímur
kveðnar auk þess að vitnað var í íslend-
ingasögur.
Nokkrir strákar frá öllum Norðurlönd-
unum tóku sig til og stofnuðu Blues-band
er skemmti áheyrendum við tnikinn fögn-
uð og var spilað og sungið fram eftir
nóttu.
Næsta morgun rann upp kveðjustund-
in, héldu menn þá hver i sína áttina, sælir
minninga um góðar samverustundir.
íslenski hópurinn hélt, um morguninn af
stað til Kokkola til að bíða flugs til
Helsinki síðdegis. Hafði hópnum verið
boðið í heimsókn á litla útvarpsstöð þar í
borg, af íslandsvini er við höfðum
kynnst. Kunnum við honum allar okkar
bestu þakkir.
Var siðan flogið til Kaupmannahafnar
með viðkomu í Helsinki. Var þar
dvalið i 2 daga og borgin skoðuð. Lokið
var nú hinni sjöttu ungmenr.aviku sem
ísland hefur tekið þátt í og vonandi á eftir
að verá framtíð í þessari samvinnu og að
hún aukist með árunum.
20
SKINFAXI