Skinfaxi - 01.10.1979, Blaðsíða 21
Krá Rcyrtarfirrti.
Á þingi
hjá
UÍA
Ungmenna- og íþróttasamband Austur-
lands er eitt þeirra sambanda innan UMFÍ
sem hvað mestum uppgangi hefur náð nú
síðustu árin og hefur árangur þeirra á
sviði frjálsra íþrótta verið mikið í sviðs-
ljósinu.
Skinfaxi var mættur á þing hjá UÍA 7.
og 8. sept. sl. sem haldið var í Félagslundi
á Reyðarfirði og það hófst á nokkuð ný-
stárlegum tíma, sem sé kl. 20.30 á
föstudagskvöldi.
Ástæðan fyrir þessari tímasetningu var
sú að sögn Sigurjóns Bjarnasonar fram-
kvstj. UÍA, að fyrirhugað hefði verið að
halda þingið á einum degi, sem sé laugar-
degi en þá hefði komið í ljós að þann dag
kl. 4 átti að fara fram þýðingar mikill
leikur í 3. deild í knattspyrnunni milli
Austra á Eskifirði og Þróttar
Neskaupstað. Samkvæmt beiðni þessara
félaga var þingtíma breytt og skyldi stefnt
að því að! ljúka þinghaldi fyrir kl. 4 á
Iaugardag, sern og tókst.
Ekki er vitað hvort þessi óvanalega
tímasetning hafði bein áhrif á fundarsókn
en á föstudagskvöld voru mættir á milli
30 og 40 fulltrúar af þeim 89 sem rétt
höfðu til setu.
Þinghald fór fram með hefðbundnum
hætti og óþarft að rekja það hér í
smáatriðum, en gripið verður niður í ein-
staka liði dagskrár eftir því sem ástæða
þykir til.
SKINFAXI
21