Skinfaxi - 01.10.1979, Side 26
fram úr en nöfn þeirra Gísla Sigurðssonar, Þórhalls
Ásmundssonar og Þorsteins Jenssonar komu
nokkuð oft fyrir. Umf. Tindastóll sigraði með
miklum yfirburðum í stigakeppninni, hlaut 151,5
stig, Glóðafeikir hlaut 55 stig, Hjalti 17,5, Höfð-
strendingur 14,5, Fram 2,5, Grettir 2 og Geisli 2.
Héraðsmót HSH,
Styrkkishólmi 29. júlí 1979
Það verður að segjast eins og er að Snæfellingar
hafa ekki verið öflugir í frjálsíþróttunum síðustu 3—
4 árin. Frálsíþróttalið þeirra var i 1. deild 1975, en er
nú í þriðju deild.
Ef marka má úrslit og þátttöku í héraðsmótinu má
búast við betra gengi strax á næsta sumri, og nú sem
stendur eru Snæfellingar sigurstranglegir í 3. deild
1980. En til þess að um verulegar framfarir verði að
ræða þarf að vekja áhuga fleira fólks á íþróttinni og
einnig að ná þátttöku frá fleiri ungmennafélögum á
svæðinu. Snæfellingar eins og mörg fleiri sambönd
hafa sinnt yngri flokkunum sómasamlega síðustu
árin og hafa átt harðsnúnu barna- og unglingaliði á
að skipa. Spili Snæfellingar rétt úr þessu liði þurfa
þeir ekki að kvíða afrekstrinum.
Helga Halldórsdóttir og Lilja Stefánsdóttir
urðu stigahæstar einstaklinga á héraðsmótinu og
hlutu 14 stig. Hjá körlunum bar mest á Hreini
Jónassyni og Sigurþór Hjörleifssyni sem báðir unnu
ágætis afrek. Þá vakti Kristján Harðarson athygli
fyrir ágætan árangur i langstökki en Kristján er einn
af hinum efnilegu unglingum Snæfellinga.
Þátttakendur voru 40 frá aðeins 4 félögum.
Snæfell sigraði stigakeppnina, hlaut 97,5 stig, Vík-
ingur 75,5, íþróttafélag Miklaholtshrepps 36, og
Umf. Grundarfjarðar 7.
Héraðsmót HSK,
SeHossi 30. júlí 1979
Skarphéðinsmenn hafa staðið í stað eða verið
heldur á niðurleið síðustu árin, enda frjálsíþróttun-
um ekki sinnt sem skyldi á HSK-svæðinu. En nú er
greinilegt að hópur efnilegra stúlkna er að koma upp
og verður áreiðanlega ekki langt þess að bíða að ein-
hverjar þeirra komi til greina í landsliðið.
Ekki er eins bjart framundan hvað karlaliðið
varðar. Endurnýjun liðsins gengur hægt vegna þess
hve fáir ungir strákar stöðvast við frjálsíþróttirnar á
sam bandssvæðinu.
Unnur Stefánsdóttir varð stigahæst kvenna á hér-
aðsmótinu en Sigurður Jónsson stigahæstur karla.
Árangurinn í kvennagreinum var í mörgum tilfell-
um ágætur og um jafna keppni að ræða. En í karla-
greinunum eru allt of margar lélegar greinar.
Umf. Selfoss sigraði í stigakeppninni eins og á sl.
tugi ára, hlaut 180 stig, Samhygð 115, Baldur
Hvolhr. 49, Vaka 41, Eyrarbakki 12, Njáll 11,
Skeiðamenn 8, Gnúpverjar 7 og Baldur Hraung.hr.
5 stig.
Héraðsmót UMSB,
Borgarnesi 18.—19. ágúst 1979
Þátttaka var alls ekki nógu góð á mótinu eða að-
eins 25—30 manns frá 5 félögum. En af úrslitunum
má ráða að nær helmingur þátttakenda nær mjög
frambærilegum árangri en hinir standa þeim nokkuð
langt að baki. T.d. í kvennagreinunum skara þær
íris Grönfeldt, Svava Grönfeldt. Ingveldur Ingi-
bergsdóttir og Hjördís Árnadóttir fram úr og ná
mjög athyglisverðum árangri en fyrir utan þessar
fjórar stúlkur er heldur fátt um fína drætti, m.a.
vegna lélegrar þátttöku í mótum.
Borgfirðingar eru ekki á flæðiskeri staddir með
karlalið sitt, þar eru nöfn eins og Jón Diðriksson,
Ágúst Þorsteinsson, Einar, Rúnar og Unnar
Vilhjálmssynir sem bera upp liðið. Þá eru Borgfirð-
ingar einnig að fá upp unga og efnilega stráka sem
eru afrakstur af ágætu unglingastarfi siðustu ára.
Einar Vilhjálmsson var mjög áberandi á Héraðsmót-
inu og náði ágætis árangri í öllum kastgreinum og
setti Borgarfjarðarmet í kúluvarpi og kringlukasti.
Það má segja það sama um karlana og um kven-
fólkið hjá UMSB að það eru 4—5 toppmenn sem
sigri ná í öllum greinum en síðan er löng leið niður á
næstu menn.
Skallagrímur sigraði í stigakeppninni 100 stig,
Umf. Reykdælir 48, Umf. Stafholtstungna 33, Umf.
íslendingur 15 og ES 9 stig.
Skrá yfir sigurvegara i nokkrum mótum.
100 m hlaup karla sek.
Hreinn Jónasson HSH 11.1
Sigurður Jónsson HSK 11.3
Friðjón Bjarnason UMSB 11.5
Gísli Sigurðasson UMSS 11.6
Guðjón Rúnarsson USAH 11.9
Bjarni Geirsson USÚ 12.3
400 m hlaup karla sek.
Jason ívarsson HSK 54.3
Gísli Sigurðsson UMSS 55.4
Bjartmar Bjarnason HSH 55.8
Kristinn Guðmundsson USAH 57.0
Bjarni Ingibergsson umsb 59.9
ÞrösturÓskarsson USÚ 64.8
26
SKINFAXI