Skinfaxi - 01.04.1980, Blaðsíða 7
það er greinilega mikill sóknar-
hugur í Þingeyingum, enda
skammt til næsta Landsmóts.
Þetta þing er það fjölsóttasta og
myndarlega sem ég man eftir hjá
HSÞ (frá 1970) bæði hvað varð-
ar fulltrúatölu og almenna þátt-
töku aðildarfélaganna. Starf
HSÞ er afar víðtækt og nær til
margra áhugahópa, en því sterk-
ara er samstillt afl þeirra.
Fjöldi verðlauna og viður-
kenninga voru afhent bæði ein-
staklingum og félögum á þinginu
fyrir unnin afrek á síðasta ári.
Þormóður Ásvaldsson var
endurkjörinn sem formaður
HSÞ.
Sig. Geirdal.
Þingstörf hjá HSÞ.
Fréttirfrá USVH
Starfsemi USVH árið 1979 hefur verið all-
mikil. Sambandið gekkst fyrir spurningakeppni á
liðnum vetri, pátttakendur voru fimm kvenfélög í
sýslunni. Sigurvegari varð kvenfélag Staðarhrepps.
Voru petta hinar bestu samkomur ogfluttu félagar
úr ungmennafélögunum fjölbreytt skemmtiefni.
A ðsókn var mjög góð.
íþróttastarfsemi
Haldið var héraðsmót í frjálsum éþróttum.
Stigahæsta félag varð Umf. Kormákur, Hvamms-
tanga. Unglingamót í frjálsum íþróttum var
haldið og þátttakendur margir. Þá voru haldin
knattsþyrnumót íyngri og eldriflokkum.
Sambandið sá um eflirlalin íþróttamót: Þriggja
sambanda keppni ífrjálsum iþróttum. Urslit urðw
USAH 177 stig, UMSS 172 stig og USVH 69
stig.
Keppni USVH og HSS ifrjálsum iþróttum.
Úrslit urðu: HSS 99 stig, USVH 81 stig.
Sundmót USVII og USAH. Sigurvegari varð
USAH. 1þróttaþjálfarar voru fóhanna Einars-
dóttir, sem sá um frjálsar iþróttir og Hafsteinn
Guðmundsson sem sá um knattspyrnu.
USVH sendir nú lið i 2. deild ikörfuknattleik.
Lita menn björtum augum á framtið iþrótta hér i
héraði þar sem margir unglingar stunduðu œfingar
á liðnu sumri.
Mikill einhugur er um að efla starfsemi USVIL
sem mest, bæði á sviði iþrótta- og félagsmála.
Áriðandi er að ungmennafélög og ungmennasam-
bönd hlúi að hinum ýmsu mannlegu þáttum hins
daglega lifs og geri allt til að efla betra mannlif á
landi hér.
U.SVH.
SKINFAXI
7