Skinfaxi - 01.08.1986, Síða 11
að það séu ekki fleiri lið sem hafa
leikið þetta eftir.
Ertu alveg búinn að snúa þér alfarið að
þjálfun ?
- Nei! Ég hef nú þjálfað yngri flokka í
mjög mörg ár og svo mfl. núna þau
síðustu, en nú í vetur þjálfa ég
eingöngu þá yngri ásamt að æfa og
leika með mfl. Eins og ég sagði áðan
þá er ég alveg hættur með landsliðinu.
Er mikill munur á launum íslenskra og
erlendra þjálfara?
- Nei ekki held ég það nú, en þeir
ameríkanar sem komu hingað til að
þjálfa og spila höfðu þó nokkuð góð
laun. í dag fer það ekkert eftir af hvaða
þjóðerni maðurinn er heldur hversu
góður hann er og hefur mikla reynslu.
Átti þetta tímabil að hafa erlenda
þjálfara að vera svona stutt?
- Nei! Þetta fór bara úr böndunum hjá
félögunum, mest allt ljármagn þeirra
fór til þessara manna, sem voru oft þeir
einu sem fengu borgað fyrir þjálfun.
Þannig að íslenska þjálfarastéttin var
við það að deyja út, en þessir menn
voru ekkert notaðir til að leiðbeina
öðrum þjálfurum eða halda námskeið.
Fara þjálfarar eitthvað erlendis á
námskeið?
Já við förum t.d. á námskeið í
Bandaríkjunum og svo í Evrópu þar
sem bandarískir þjálfarar leiðbeina, en
eins og margir vita þá standa Bandaríkin
fremst í körfuknattleiknum. Ég var t.d.
að lesa nýlegt viðtal við landsliðs-
þjálfara Spánar þar sem hann sagði að
ef sama þróun héldi áfram í Evrópskum
körfuknattleik þá væri von til að ná
Bandaríkjunum á næstu 50 árum, svo
mikill munur er á þessu.
Torfi! Þú sagðir mér áðan að þú hefðir
svo til eingöngu verið í körfuknattleik,
fyrir utan smá tíma í sundi. Ertu viss
um að þú gleymir ekki einhverju núna?
- Gleymt einhverju, það held ég ekki.
Jú!! heyrðu ég varð íslands- og
bikarmeistari í blaki með Umf.
Laugdælum, alveg var ég búinn að
gleyma þessu. Við strákamir í ÍKÍ
gengum allir í Umf. Laugdæli eða
réttara sagt Leifur Harðar skráði okkur
alla í félagið ef ske kynni að hægt væri
að nota einhverja. Það fór svo að Leifur
þóttist geta notað mig í liðið eða alla
vega hópinn og unnum við íslands-
mótið bæði árin sem við vorum á ÍKÍ
1978-80. Ég hafði nú ekkert
komið nálægt blaki fyrr en þetta og
heldur ekki eftir að við lukum ÍKÍ.
Jæja Torfi segðu mér að lokum,
fylgistu með öðrum íþróttum?
Já ég fylgist mikið með knatt-
spymunni og þá sérstaklega KR. En þar
leikur uppáhalds leikmaður minn hann
Jakob Þór Pétursson, og hef ég mikið
dálæti á honum sem knattspymumanni.
Annars fylgist ég nokkuð með öðmm
íþróttum eins og tími og tækifæri
gefast.
Ég þakka þér kærlega fyrir spjallið og
óska þér góðs gengis í framtíðinni.
Guðmundur Gíslason
á skákþrautum
1. Karl - Jóhann 3.Þröstur-Björgvin
1. Dxf8+! og Jóhann
upp.
1
Kc8
3
Kxí'8 2.
4. Hd8 erhannmát,
2.Davíð - Margeir
1. Hd7! og Davíð vann, því
að ef 1. - Dx7, þá 2. Rxi6+
Og drottningin fcllur.
1,- Rd4! 2. cxd4 Hxb2!
3, Dxb2 Bxd4+ og hvíta
drottningin fellur. Björgvin
vann auðveldlega.
4. Jón L. - Davíð
1, Rc5! Hxc5 2. Hd8+
Kh7 3. f7 Hcxc2+ 4. Kdl
Hxb2 (ef 4. - Hcf2. þá 5.
f8=D Hxf8 6. HxfS Rc6
7. Hf7+ Kh6 8. Hh8 mát)
5. Hh8+! og svartur gaf. Ef
5. - KxhS, þá 6. f8=D+
T/1i7 7. Hf7 mát.
5. Hannes - Karl
1. Hcxc5! bxc5 2. Hd7
Dc8 3. Bd3 g6 4. Dd5
Hf8 5. b6! (svartur hetur
sig hvergi hrærl) Hb8 6.
Rxb8 Dxb8 7. Bxg6 Dxbó
8. Hxf7 og svarlur gafst
upp, því að hann er
óverjandi mát.
Skinfaxi
11