Skinfaxi - 01.08.1986, Blaðsíða 19
Sigurður kveður
Texti: Pálmi Gíslason Myndir: Skinfaxi
Um það leyti er þetta 4. tbl. Skinfaxa
kemur út er Sigurður Geirdal að láta af
störfum framkvæmdastjóra UMFÍ, eftir
rúmlega 16 ára starf.
A haust dögum 1969 var kosin ný
stjórn hjá UMFÍ, undir forystu hins
kraftmikla hugsjónamanns Hafsteins
Þorvaldssonar. Undirritaður var þeirrar
gæfu aðnjótandi að sitja sem 1.
varamaður stjórnarfundi fyrstu 4 ár
þessarar stjómar og verða vitni að
upphafi endurreisnarinnar.
Eitt af því fyrsta sem stjómin var
sammála um að framkvæma var að
koma á fót þjónustumiðstöð og ráða
framkvæmdastjóra í fullt starf. En fram
að þessu hafði aðeins verið um
hlutastarf að ræða hjá UMFÍ.
Fyrri hluta árs 1970 var Sigurður
Geirdal ráðinn til UMFÍ. Það reyndist
mikið happ fyrir hreyfinguna. Áhugi og
dugnaður einkenndu störf Sigurðar frá
upphafi og urðu ríkur þáttur í þeirri
miklu velgengni sem ungmennafélags-
hreyfingin hefur búið við á undan-
förnum ámm.
Sigurður var og er fljótur að kynnast
fólki og afar fljótur að meta stöðuna
hverju sinni hvort sem um fámennan
fund eða fjölmennt þing er að ræða,
draga ályktanir og leggja síðan á ráðin
um hvernig best verði að unnið.
Undir hans stjórn var þjónustumið-
stöðin sá staður er ungmennafélagar
leituðu til. Þar gat fólk rætt málin og
fengið upplýsingar og ráð.
Margar skemmtilegar ferðir á þing og
fundi höfum við farið saman. Það var
alltaf gott að ferðast með Sigga, enda er
hann ótrúlega mannglöggur og vel að
sér um starfsemi einstakra félaga og
héraðssambanda.
Þá vil ég f.h. ungmennafélagshreyfing-
arinnar þakka Sigurði fyrir hans mikla
og fórnfúsa starf. Sömuleiðis vil ég f.h.
stjómar UMFÍ þakka ánægjulegt
samstarf og óska honum og fjölskyldu
hans gæfu og gengis um ókomna
framtíð.
Ég vil sömuleiðis þakka Sigga vini
nunum allt okkar mikla og nána
samstarf á liðnum ámm. Ég veit að
Siggi er og verður alltaf ungmenna-
félagi og er langt í frá horfinn hreyfing-
unni.
Pálmi Gíslason
Skinfaxi
19