Skinfaxi - 01.08.1986, Page 23
Bikarkeppni
FRÍ 2. deild
Texti: Jón Sævar Þórðarson
Bikarkeppni 2. deildar fór að þessu
sinni fram á Egilsstöðum og sá UÍA
um framkvæmd hennar.
Liðin sem þátt tóku í keppninni voru:
UÍA og UMSE sem féllu úr 1. deild í
fyrra, USAH og HSÞ sem komu upp úr
3. deild og UMSB og UMFK sem
héldu sætum sínum í 2. deild síðast
liðið sumar.
UÍA-mönnum fórst framkvæmd keppn-
innar vel úr hendi eins og við var að
búast en það verður að segjast eins og
er að völlurinn er slæmur og þyrfti að
gera á honum ákveðnar bragabætur til
að hann geti talist boðlegur fyrir mót
sem þetta. Góður andi var ríkjandi báða
keppnisdagana, menn skemmtu sér vel
og létu keppnina fara fram innan vailar
en ekki utan eins og því miður oft vill
verða.
Heimamenn höfðu umtalsverða
yfirburði yfir önnur lið í keppninni og
sigruðu mjög auðveldlega. Er vonandi
að þeir geti stillt upp jafn sterku eða
sterkara liði í 1. deildinni að ári.
En þar sem 2 lið komast upp úr
deildinni hélst rafmögnuð spenna báða
keppnisdagana, því UMFK, USAH og
UMSB börðust harðri baráttu um hitt
sætið í 1. deild. Svo fór að UMFK seig
framúr í lokin og tryggði sér 1. deildar
sæti aðeins 2 árum eftir að frjálsíþrótdr
voru endurvaktar af 30 ára svefni.
UlA ætti að standa sig vel í 1. deildinni
en róður Keflvíkinga verður áreiðanlega
þungur. UMSB og USAH héldu sætum
sínum í deildinni, USAH er í stöðugri
sókn og sýnist mér vera staðið
skynsamlega að málum þar. Er vonandi
að áframhald verði á því. Nægur er
efniviðurinn.
UMSB er búið að vera í nokkrum
öldudal undanfarin ár og er enn.
Kannski tekst með hjálp og góðum
vilja nýráðins framkvæmdastjóra að
ráða frjálsíþróttaþjálfara árið um kring
og skapa honum vinnuaðstöðu. Það
yrði til bóta.
Að þessu sinni féllu hin fomu stórveldi
UMSE og HSÞ niður í 3. deild og er
það ný reynsla, en vonandi góð fyrir
Eyfirðinga. Ótrúlegt áhugaleysi
gagnvart sambandinu er áberandi fyrir
íþróttamenn á svæðinu. Ekki er verið
að sakast við þá sem mættu til leiks
heldur hina sem kusu að sitja heima í
stað þess að fara með og berjast á toppi
deildarinnar. Einhver ástæða er fyrir
þessu andleysi og vonandi leggja mínir
gömlu félagar höfuðið í bleyti og gera
viðeigandi ráðstafanir.
HSÞ hefur átt í erfiðleikum mörg
undanfarin ár og mættu með langlakasta
liðið til Egilsstaða.
Eg ætla samt að leyfa mér að vera
bjartsýnn fyrir hönd HSÞ meðan þeir
halda áfrarn að reyna og gefast ekki
upp. Kvennalið þeirra er í hæfilegri
endurnýjun og framför. Þeir eiga
nokkuð sterkt lið í yngri
aldurshópunum og nýjir vellir rísa upp
víða á svæðinu. Með þátttöku
Húsvíkinga (og jafnvel án hennar) getur
HSÞ aftur orðið stórveldi í frjálsum
íþróttum.
100 m. hlaup kvcnna (mcðvindur)
1 Hclga Magnúsdóttir UlA 12,6 sek.
2-3 Ragna Erlingsdóttir IISÞ 12,8 "
2-3 Hólmfnður Erlingsd. UMSE 12,8 "
4-5 Mcttc Löyche USAII 12,9 "
4-5 Ilafdís Hafsteinsd. UMFK 12,9 "
6 Anna Björk Bjarnad. UMSB 13,0 "
400 m. hlaup kvcnna
1 Sólvcig Ámadóltir IISÞ 63,8 sck.
2 Anna Björk Bjarnad.UMSB 64,6 "
3 Ilclga Magnúsdóttir UÍA 64,8 "
4 Stcinunn Snorrad. USAII 66,5 "
5 Anna Gunnarsdóttir UMEK 67,6 "
6 íris B. Ámadóttir UMSE 76,0 "
400 m. grindahlaup kvenna
1 Stcinunn Snorrad. USAII 70,0 sek.
2 Guðrún Svcinsd. UÍA 71,8
3 Ilafdís Hafsteinsd. UMFK 72,1
4 Margrct Brynjólfsd. UMSB 73,8
5 Halldfs Höskuldsd. HSÞ 78,3
6 Ilalldóra Gunnlaugsd. UMSE 80,2
1500 m. hlaup kvcnna
1 Guðrún Svcinsd. UlA 5:10,4 mín.
2 Sólvcig Stcfánsd. USAH 5:16,4 "
3 Margrét Brynjólfsd. UMSB 5:29,3
4 Ilafdís Ilafstcinsd. UMFK 5:59,9 "
5 Sólveig Sigurðard. UMSE 7:30,0 "
200 m. hlaup karla (mcðvindur)
1 Egill Eiðsson UÍA 22,2 sek.
2 CeesvandeVcn UMSE 22,9
3 Sigurður Ingvarsson UMFK23.3
4 Einar F. Jónsson' UMSB 23,7
5 Guðmundur S. Ragnarss. USAII 24,2
6 Magnús Aðalstcinsson IISÞ 27,0
400 m. grindahlaup karla
1 Cor dc Jonge UMFK61,0sek.
2 Agnar B. Guðmundss. USAII 61,5 "
3 Bóas Jónsson UÍA 62,5 "
4 Sigurður Magnússon UMSE 65,6 "
5 Gunnar Jóhanncsson IISÞ 69,2 "
6 Birgir öm Birgisson UMSB 76,4
800 m. hlaup karla
1 Brynjúlfur IIilmarss.UÍA 2:05,9 mín.
2 Guðni Gunnarsson UMFK 2:07,9
3 Sigurður Jónsson UMSE 2:08,5 "
4 Ágúst Þorstcinsson UMSB 2:11,6 "
5 Bjöm Bjömsson USAH 2:15,4 "
6 Sigurjón Ármannss. IISÞ 2:29,4
3000 m. hlaup karla
1 Brynjúlfur Hilmarss. UÍA 9:00,7 mín.
2 Már Ilcrmannsson UMFK 9:17,7
3 Ágúst Þorsteinsson UMSB 10:02,3
4 Bcnedikt Björgvinss. IISÞ 10:07,4
5 Sigfús Jónsson USAII 10:23,9 "
6 Kristján Þorstcinss. UMSE 11:21,6 "
100 m. hlaup karla
1 Egill Eiðsson UÍA 10,9 sek.
2 CccsvandeVen UMSE 11,0 "
3 Sigurður Ingvarsson UMFK 11,4 "
4 Einar Freyr Jónsson UMSB 11,6 "
5 Indriði Jósafatsson USAII 11,7 "
6 Magnús Aðalstcinss. IISÞ 12,9 "
110 m. grindahlaup karla
1 Unnar Vilhjálmss. UÍA 16,0 sek.
2 CccsvandcVcn UMSE 16,1 "
3 Jcns Ililmarsson UMFK 16,9 "
4 Ilafstcinn Ó. Þóriss. UMSB 18,3 "
5 Agnar B. Guðmundss. USAII 21,7 "
110 m. grindahlaup kvcnna
1 Anna Björk Bjarnad. UMSB 16,4 sck.
2 Anna Gunnarsdóttir UMFK 16,5 "
3 Ragna Erlingsdóttir HSÞ 16,6 "
4 HólmfríðurErlingsd. UMSE 18,1 "
5 Þórdís Ilrafnkelsd. UÍA 18,5 "
6 Mctta Löyche USAII 18,9 "
Skinfaxi
23