Skinfaxi - 01.08.1990, Síða 4
FRÁ RITSTJÓRA
Það er sama hvaða vindar blása,
Landsmót UMFI eru og verða há-
punktur þeirra samverustunda sem
ungmennafélagar eiga.
20. Landsmót Ungmennafélags
Islands er nú liðið og var það í umsjá
Ungmennasambands Kjalarnesþings.
Þrátt fyrir mjög óhagstætt veður tókst
mótið vel. MosfeJlsbærskartaði sínu
fegursta þegar í upphafi móts, en
óhætt er að fullyrða að landsmótsgestir
hafi orðið vitni að fjölbreyttum veðrabrigðum. Mikil kynning,
á starfsemi ungmennafélaganna átti sér stað í útvarpi og sjón-
varpi og gat sjónvarpsáhorfandinn ekki síðurfylgst grannt með
keppninni en áhorfandinn í Mosfellsbæ. Tíminn líður fljótt og
eru ungmennafélagar um allt land þegar farnir að huga að
þátttöku Í21. Landsmóti UMFI sem haldið verðuráLaugarvatni
1993.
3. tölublað Skinfaxa 1990 er fullt af efni frá Landsmótinu í
Mosfellsbæ í sumar. Hér gefur að líta úrslit allra greina móts-
ins, greina sem töldust til stiga og sýningargreina, ásamt um-
fjöllun um allnokkrar. Margir glæstir sigrar unnustog aðalviðtal
Skinfaxa er við Pétur Guðmundsson kúluvarpara, sem kastaði
kúlunni 20,66 metra og var það besta afrek mótsins. Pétur
stefnir markvisst uppávið, hann hefur þegar bætt um betur og
kastað 20,77 metra og er nú annar besti kúluvarpari á
Norðurlöndum. Pétur segir frá íþróttaferli sínum, ræðir um
íslenska afreksíþróttamenn og þá aðstöðu sem þeim er búin.
Eigum við að styðja við bakið á afreksmönnum eða eiga þeir
að sjá um sig sjálfir? Geta almennings- og afreksíþróttir farið
saman? Ef til vill er því þannið farið að afreksíþróttir verki
hvetjandi á almenningsíþróttir og öfugt.
Kveðja
Una María Oskarsdóttir
Krakkar úr Mosfellsbæ seldu Skinfaxa á Landsmótinu
RADDIR LESENDA
Hér á síðunni gefur að líta
álit þriggja lesenda Skinfaxa
á efni og útliti blaðsins. Hug-
myndin með þessum þœtti er
að koma á betri tengslum við
lesendur. Eruð þið hér með
hvött til að hafa samband við
blaðið annað livort með því
að hringja eða senda okkur
nokkrar línur. Segið okkur
hvaðykkurfinnst um efnið og
útlitið, Itvað ykkurfinnst gott
og hvað mœtti beturfara
Síminn er 91-12546.
Hafdís Rafnsdóttir,
Keilusíðu 8d, Akureyri
„Mér finnst útlitið á Skinfaxa
gott, en það vantar litmyndir.
Eg las auðvitað Landsmóts-
spána, viðtalið við Vigdísi
Finnbogadóttur, greinina um
4
Laugarvatn, greinina um sam-
starf sveitarfélaga og ung-
mennafélaga og gluggaði í
vísnaþáttinn og barnaþátt-
inn.
Á barnasíðunni finnst mér að
ættu að vera sögur, viðtöl,
skrítlur o. fl. Eg vildi geta
lesið stutt viðtöl við íþrótta-
fólk, t. d. sett upp eftir fyrir-
framákveðinniformúlu. Eins
væri gott að fá léttara efni inn
á milli.”
„Ég hef mjög gaman af að fá
Skinfaxa og les allt blaðið
þegarþaðkemur. Reyndarsé
ég það ekki alltaf strax því
sonur minn er fyrri til en ég.
Það blað sem ég er með í
höndunum núnaer 1. tölublað
1990.
Mér líst ljómandi vel á þetta
blað, það er reglulega fallegt
og leiðarinn góður. Efnið
finnst mér gott, en ég vildi
gjarnan að meira yrði skrifað
um starfsemi félaganna hér á
Austfjörðum,þáeinnigþeirra
sem minna ber á. Hér á
Vopnafirði er ungt og upp-
rennandi frjálsíþróttafólk, en
frjálsíþróttastarf verður því
miður að lúta í lægra haldi
fyrir knattspyrnunni sem allt
snýst um.”
Albert Sigurjónsson,
Sandbakka, Villingaholts-
hreppi, Arnessýslu
"Skinfaxi hlýtur auðvitað að
flytja fréttir af starfi ung-
mennafélaganna, en mér
finnst oft fjallað of mikið um
afreksíþróttir en síður um aðr-
ar íþróttir
Ég las auðvitað Landsmóts-
spána, greinar um gerfigras,
grasvelli og greinina um
Laugarvatn. Églaslíkavísna-
þáttinn og mér finnst mynd-
irnar í blaðinu hafa batnað
stórum."
Skinfaxi
Gísli Jónsson,
Hafnarbyggð 29,
Vopnafirði
I