Skinfaxi - 01.08.1990, Blaðsíða 23
GLÍMA Á LANDSMÓTI
Drengileg og
falleg keppni
Landsmótskeppnin í glímu fór fram 15.
jiilíog varmeðsíðustu greinum mótsins.
Glíman var með fjörugasta móti og
hvatning áhorfenda benti til ánægju með
frammistöðu keppenda í sókn og vörn.
1. fl. undir 75 kg vinningar
1. Arngeir Friðriksson HSÞ 6
2. Helgi Kjartansson HSK 5
3. Yngvi R. Kristjánsson HSÞ 4
4. Arngrímur Geirsson HSÞ 3
5. -6. Jóhann Sveinbjörnss. HSK 11/2
5.-6. Trausti Sigurjónsson HSK 11/2
7. Stefán Bárðarson UV 0
í fyrsta flokki varð Arngeir Friðriksson
öruggur sigurvegari og lagði alla mót-
herja sína og Helgi Kjartansson glímdi
einnig geysilega skemmtilega. Yngvi
Ragnar Kristjánsson erefni íbetri glímu-
mann, en Arngrímur Geirsson, aldurs-
forseti keppninnar naut reynslu sinnar
og þroska. Það er raunar athyglisvert að
sjá og njóta keppni svo roskins manns
og íhugunarefni annarra að hætta ekki
keppni svo fljótt sem raun er á um flesta.
Aðeins varð eitt jafnglími.
2. fl. undir 85 kg vinningar
1. Tryggvi Héðinsson HSÞ 3
2. Kristján Yngvason HSÞ 3
Margar viður-
eignir unnust
á “ippon”
Fjögur sambönd sendu lið til að keppa
í júdó á Landsmótinu, voru það HSH,
HSK, UMFK og UMFG. Keppninþótti
ganga hratt og vel fyrir sig og sluppu
keppendur án nokkurra meiðsla. Flestar
glímurnar voru snarpar og unnust inarg-
ar á “ippon” eða með fullnaðarsigri.
I léttasta flokknum, undir 70 kg, var
gífurleg keppni milli þeirra Gunnars
JóhannessonarogHilmarsKjartansson-
ar, en þeir eru báðir úr UMFG. Þeir
unnu allar sínar glímur nokkuð
sannfærandi og réð því þeirra glíma
3. Halldór Konráðsson UV 3
4. Björn Böðvarsson HSÞ 1
5. Engilbert Olgeirsson HSK 0
í þessum flokki var keppnin hörðust og
þrír urðu efstir og jafnir. Það var súrt
fyrir Halldór að fá byltu fyrir Tryggva
um leið og tímabjallan glumdi og verða
þar með af sigurlaununum. Það virðast
vera aldurshvörf í þessum flokki, en
engin ástæða er fyrir þá eldri að hætta
keppni. A góðum degi með reglubundn-
ar æfingar að baki eru Halldór og
Kristján til alls vísir og aukinn þroski
og reynsla vegur fyllilega upp á móti
snerputapi áranna. Tryggvi er þegar
orðinn góður glímumaður og hefur alla
burði til að verða frábær ef hann sinnir
íþróttinni af alúð, æfir og les sér til um
glímu.
3. fl. yfir 85 kg vinningar
1. Jóhannes Sveinbjörnss. HSK 4
2. Eyþór Pétursson HSÞ 3
3. Gunnar Gunnarsson HSK 2
4. Arngrímur Jónmundss. HSÞ 1
5. Lárus Björnsson HSÞ 0
Jóhannes Sveinbjörnsson hafði mikla
yfirburði í þessum flokki og þó er eins
og mér finnist hann eigi eftir að bæta sig
mjög mikið ef heilsa og áhugi bilar
ekki. Eyþór var langt frá sínu besta og
læðist að sá grunur að hann æfi í lágmarki
og þá fá menn skell.
JÚDÓ Á LANDSMÓTI
úrslitum í flokknum. Þar reyndist Gunn-
ar hafa meiri reynslu og vann á “waza-
ari” eða með sjö stigum eftir harða og
jafna glímu, þar sem báðir sóttu stíft.
í millivigtarflokknum, undir78 kg, hafði
Omar Sigurðsson úr UMFK rnikla yfir-
burði yfir aðra keppendur og vann allar
sínar glímur með fullnaðarsigri eftir
stuttar glímur.
I þyngsta flokknum sigraði Sigurður
BergmannúrUMFG. Hafðihanneinnig
mikla yfirburði yfir sína keppendur og
vann allar sínar glímur með fullnaðar-
sigri.
Keppnin þótti takast mjög vel og hafði
Hákon Halldórsson, formaður Júdósam-
bands íslands, yfirumsjón með henni.
Dómarar voru Guðmundur Röngnvalds-
son og Jóhannes Haraldsson
Arngímur Geirsson HSÞ reynir innanfótar hælkrók
meö hægri fæti á vinstri fót
Lokastaða:
1. HSÞ 37 stig, 2. HSK 20stigog 3. UV
4 stig.
Keppni n var mjög drengileg í alla staði,
falleg og vel dæmd. Eins og eðlilegt er,
var pottur brotinn hjá byrjendum, en
slík keppni gefur mikið af sér í reynslu
og þroska. Einhvern tíman verða menn
að byrja og betra l'yrr en síðar, eða alls
ekki. Hafi þeir þökk sem ánetjastþjóðar-
íþróttinni og sýna henni virðingu.
Ingvi Guðmundsson,.
glímustjóri Landsmóts.
Urslit:
-70 kg
1. Gunnar Jóhannesson UMFG
2. Hilmar Kjartansson UMFG
3. Valdimar Sigurðsson HSH
4. Þráinn Egilsson HSH
-78 kg
1. Omar Sigurðsson UMFK
2. Hjálmar Hallgrímsson UMFG
3. Stefán Gunnarsson HSK
4. Asgeir Finnsson HSH
+78 kg
1. Sigurður Bergmann UMFG
2. Guðmundur S. Olafsson HSK
3. Eiríkur Gautsson HSH
4. Alfons Finnsson HSH
5. Rúnar Jóhannsson HSH
Skinfaxi
23