Skinfaxi - 01.08.1990, Blaðsíða 30
KNATTSPYRNA A LANDSMOTI
Vaxandi áhugi
á kvenna-
knattspyrnu
Landsmótshelgina í Mosfellsbæ voru
30 knattspyrnuleikir leiknir og fóru þeir
fram áTungubökkum, í skjóli fyrir veðri,
vindum og moldroki. Þaðerhátt í fjór-
földun leikja frá fyrri Landsmótum.
Mestu munar að nú var keppt í kvenna-
knattspyrnu og voru þátttökulið í for-
keppninni fleiri heldur en í öllu Islands-
móti KSÍ 1989, þannig að Landsmótið
hlýtur að hafa verið kærkomið verkefni
fyrirkvennaknattspyrnulið, sérstaklega
utan höfuðborgarsvæðisins.
Knattspyrnukeppnin gekk í alla staði
mjög vel, tímaáætlanir stóðust og einu
áhrif veðursins voru að fresta þurfti
úrslitaleiknum um 1. sæti kvenna fram
á sunnudag. Margir skemmtilegir og
spennandi leikir voru leiknir og knatt-
spyrnan sem leikin var á mótinu var
heildina litið ntjög góð, enda mörg góð
lið að keppa og vallaraðstæður eins og
best verður á kosið. Hart var barist og
leikmenn lögðu sig alla fram við að hala
inn stig fyrir sitt samband, en keppnis-
lundin og leikgleðin voru alltaf í aðal-
hlutverki.
Konumar sýndu góöa knattspyrnu á Landsmótinu
Knattspyrna kvenna
Knattspyrna kvenna er sennilega sú
íþróttagrein sem er í hvað mestum vexti.
Fjöldi þeirra liða sem nú eru komin fram
á sjónarsviðið sýnir glöggt þann mikla
og vaxandi áhuga sem ríkir um allt land.
í A-riðli léku UDN, UÍA, UMSK og
USU sem fékk rétt til þess að keppa á
Landsmótinu eftir aukaforkeppni sem
Keflvíkingar sigurvissir og höfnuöu í fyrsta sæti
haldin var í vor, því ákveðið hafði verið
að fjölga liðum úr 6 í 8.
I fyrsta leik riðilsins kom íljós að kvenna-
knattspyrna á Austurlandi er í mikilli
sókn, en þá mættust lið UÍA og USÚ í
hörkuspennandi og góðum leik. Eftir
mikla baráttu tókst Hornfirðingum að
sigra 2-1 en UIA stúlkurnar, sem áttu
mörg góð færi, misnotuðu m. a. víta-
spyrnu.
UMSK hafði töluverða yfirburði í riðl-
inum, enda stór hluti liðsins landsliðs-
menn. Sigur þeirra á mótinu kom því
ekki á óvart, en andstæðingar þeirra
hafa eflaust fengið góða reynslu af að
leika gegn þeiin. Aðeins liði USÚ tókst
að skora hjá þeim mark.
UMSK sigraði sem sagt í riðlinum, í
öðru sæti var USÚ, UÍA í þriðja og
UDN ífjórða. Dalastúlkurnáðuágætum
leik gegn sterku liði UÍA og tókst að
skora 2 mörk.
Það sem kom h vað mest á óvart í þessum
riðli var góð frammistaða liðs USÚ,
sannkallað “Kamerúnlið” mótsins og
ekki er ólíklegt að einhverjar Horna-
fjarðarstúlkur hafi á mótinu spilað sig
inn í íslenska landsliðið.
A-riðill úrslit:
UDN - USÚ 0-5
UÍA - USÚ 1 -2
UMSK-UDN 18-0
UMSK - UÍA 10-0
UÍA - UDN 6-2
USÚ - UMSK 1 - 12
f B-riðli léku HSK, HSÞ, UMSE og
USVH sem vann sér þátttökurétt eftir
aukaforkeppnina og gerði sér, eins og
USÚ, lítið fyrir og varð í öðru sæti
riðilsins.
UMSE sigraði í riðlinum, vann alla sína
leiki nokkuð örugglega og fékk aðeins á
sig eitt mark. Það mark var skorað af
HSK stelpunum, og voru þær þó í óstuði
í leiknum og töpuðu stórt, 9-1. Skarp-
héðinsstúlkur voru óheppnar og hefði
ósigurinn orðið minni, í mörkum talið,
hefðu þær leikið um 5. sætið á mótinu í
stað 7. Baráttan um 3ja sætið í riðlinum
var á milli HSK og HSÞ sem gerðu
jafntefli 3-3.
B-riðill úrslit:
HSK-UMSE 1 -9
HSÞ - UMSE 0-6
USVH- HSK 6-4
USVH- HSÞ 3-0
HSÞ-HSK 3-3
UMSE-USVH 5-0
Þegar kom að úrslitaleikjum um sæti
virtistsem A-riðill hafi veriðmun sterk-
ari en B, því liðin í A-riðli unnu alla
leikina með miklum mun nema leikinn
um 7. sæti, þar sem UDN vann Skarp-
héðin 2-1. Þess ber þó að gæta, að liðin
voru mismunandi óheppin hvað varðar
meiðsli. Það er mikið álag að leika fjóra
leiki á jafnmörgum dögum og dæmi
voru um að í lið vantaði 4-5 leikmenn í
úrslitaleiknum. Ohætt er að fullyrða að
stúlkurnar hafi verið orðnar þreyttar, en
ánægðar, þegar Landsmóti lauk, því
mótið fór fram við góðar aðstæður og
var virkilega skemmtilegt.
Leikir uni sæti:
UDN - HSK 2- 1
USÚ -USVH 8- 1
UÍA - HSÞ 9-0
UMSK-UMSE 14-0
Lokastaöa:
1. UMSK
2. UMSE
3. USÚ
4. USVH
5. UÍA
6. HSÞ
7. UDN
8. HSK
/
30
/
Skinfaxi