Skinfaxi - 01.08.1990, Blaðsíða 6
LANDSMÓTIÐ
Okkar gömlu baráttumál nú áhugamál
almennings
Setningarræða formanns UMFÍ, Pálma Gíslasonar.
Heiðursgestur Landsmótsins Hafsteinn
Þorvaldsson og frú, ráðherrar, bæjar-
stjórn Mosfellsbæjar, keppendur, starfs-
menn, mótsgestir og sjónvarpsáhorf-
endur.
Fyrir hönd Ungmennafélags íslands
býð ég ykkur öll velkomin á 20. Lands-
mót UMFÍ sem haldið er hér í Mosfells-
bæ í umsjá Ungmennasambands Kjalar-
nesþings. Eg býð sérstaklega velkomna
hingað þátttakendur frá Landsmótinu í
Haukadal 1940, en þá voru Landsmótin
endurreist og hafa verið haldin reglulega
síðan.
Hingað eru mættir fleiri keppendur í
fleiri íþróttagreinum en nokkru sinni
fyrr. Ástæðan er fyrst og fremst vaxandi
starf ungmennafélaga um allt land og
mikilfjölgunfélagaenþeireru nú um40
þúsund, en voru innan við 30 þúsund á
síðasta Landsmóti fyrir þremur árum.
Ef einhverjir halda að hugsjónir séu
ekki til þá er það rangt, ef einhverjir
halda að sjálfboðaliðastarfið sé horfið
þá er það Ifka rangt. Ut um allt land
vinnur ótrúlegur fjöldi fólks að æsku-
lýðs- og félagsstarfi. I hörðu lífsgæða-
kapphlaupi er auðvelt fyrir ungt fólk að
misstíga sig og lenda á ógæfubraut.
Æskulýðs- og íþróttastarf er mikilvæg-
asta vörnin, því þar á hver og einn að
geta fundið sér verkefni og lært að taka
þátt í leikjum jafnaldra, en leikurinn er
eitt það mikilvægsta í lífi hvers og eins
- leikurinn erlögmál lífshamingjunnar.
Og sá sem tekur sjálfan sig svo hátíðlega
að hann geti ekki tekið þátt í leiknum
hann fer mikils á mis. Þó allir sem hér
eru mættir til keppni muni gera sitt besta
skulum við gera þetta að móti leiksins -
að móti samverunnar - að móti gleðinnar.
Við erum komin hér saman til að eiga
góða daga og látum ekkert trufla það.
Kjörorð UMFI hefur ætíð verið:
Ræktun lýðs og lands. Þess vegna er
starf ungmennafélaganna fjölþætt,
íþróttir eru stærsti þátturinn, en að
fjölmörgu öðru er unnið eins og leiklist,
félagsmálafræðslu, skógrækt og um-
hverfisvernd. Það er skemmtilegt að
þessi gömlu baráttumál okkar skógrækt
og umhverfisvernd eru nú orðin svo
almenn.
Á síðasta ári hreinsuðu 8 þús ung-
mennafélagar rusl meðfram vegum
landsins alls, 6 þús km. Baráttumál okk-
ar sem nefnt er Eflum íslenskt og náði
hámarki 1982 er hvatning til fólks að
kaupa innlenda framleiðslu fremur en
innflutta þar sem því verður við komið.
Með því má tryggja atvinnu. Með því
áheyrandi góður að velja íslenska hlutinn
getur þú tryggt barni þínu, barnabarni
eða barni einhvers annars betri framtíð.
Vaxandi áhugi fyrir almennings-
íþróttum og útivist er mikil blessun -
íþróttirafreksmannaeru þaðeinnig, þær
hvetja til almennrar þátttöku og ungt
fólk til að leggja sig fram.
Við erum mætt hér í Mosfellsbæ þar
sem heimamenn hafa gert allt til að gera
aðstöðu sem besta og skulu þeim færðar
miklar þakkir. Bærinn skartar sínu feg-
ursta. Við hlökkum til verunnar hér - að
vera hér saman, sjá keppni og gleðjast,
standa í biðröðum - standa þétt saman.
Við skulum gleðjast - við skulum njóta
leiksins og gleðinnar.
Forystumenn ungmennafélaga þakkir
skulu ykkur færðar fyrir mikil störf á
liðnum árum.
Gott íþróttafólk, það sigraekki allirá
þessu móti en ef al lir gera sitt besta þá er
tilgangnum náð. Það er sómi að því að
vera þátttakandi á slíku móti og megi
drengileg keppni einkenna 20. Landsmót
UMFÍ
20. Landsmót UMFÍ er sett.
Islandi allt.
Skiníaxi
dof pL)
6
Skinfaxi