Skinfaxi - 01.08.1990, Page 7
LANDSMÓTIÐ
Látum gott af okkur leiða
Ræða Hafsteins Þorvaldssonar, heiðursgests 20. Landsmóts
UMFÍ, flutt við opnunarhátíðina 12. júlí 1990.
Forseti íslands f r ú V i g d í s Finnboga-
dóttir, stjórn UMFÍ, forsvarsmenn Mos-
fellsbæjar, framkvæmdaaðilar 20.
Landsmóts UMFÍ, góðir ungmenna-
félagar og gestir.
Þegar ég fékk þetta óvænta og kannski
óverðskuldaða boð að mæta hér sem
heiðursgestur Landsmótsins, varð mér
efst í huga að tíminn líður sem örskots-
stund og áður en varir er maður orðin
áhorfandi og ef til vill þiggjandi í því
starfi og þeim leik sem næst stendur
huga manns og hjarta.
Vel skal sáö
Æskulýðs- og íþróttastarf er í mínum
huga ræktunarstarf, þar sem mikilsvert
er að vel sé til sáð, því þar liggja rætur
þjóðfélagsins, sem framtíðin byggir á. I
því starfi lærum við svo margt í mann-
legum samskiptum bæði í meðlæti og
mótlæti og þar getum við þegar vel tekst
til lagt grunninn að farsælli framtíð
einstaklinga. Um tíma hafa ýmiss ung-
skáld með þjóð vorri reynt að gera lítið
úr ungmennafélagsskapnum og ýmsum
þeim hugsjónum sem þar hafa fæðst og
við höfum barist fyrir, í stað þess að
svara slíku hjali kusum við að láta verkin
tala og héldum ótrauð áfram við rækt-
unarstörfin og fjölþætta uppbyggingu
sem þeim tengjast sem ég þori að full-
yrða að hefur mjög víða tekisl býsna vel.
Talandi dæmi um það er sú glæsilega
íþróttaaðstaða sem komin er hér að
Varmá í Mosfellsbæ. í því sambandi
leyfi ég mér að rifja upp brot úr viðtali í
Skinfaxa fyrir rúmum 20 árum við hinn
mikla baráttumann og ungmennafélaga
Jón Guðmundsson á Reykjum, sem átt
hefur hugsjón frá þeim tíma og ellaust
miklu lengur að hér mætti rísa aðstaða
til landsmótshalds. Jón segir í þessu
umrædda viðtali: „Ég tel það afdráttar-
laust lífsnauðsyn fyrir ungmenna- og
íþróttafélögin að komið verði upp stórum
héraðsmótssvæðum, þar sem aðstaða er
til að halda veglegar íþróttasamkomur.
Þessi skoðun varð að óbifandi sann-
færingu eftir að ég varð vitni að Lands-
mótinu á Laugarvatni 1965. Þetta er
ekki aðeins félagsleg nauðsy n fyrir hinar
dreifðu byggðir, heldur er um að ræða
að styrkja einn af máttarstólpum sjálf-
stæðis okkar, þar sem ungmennafélögin
eru.” Svo mæltist þessum hugsjóna-
manni. Óneitanlega yljar það þeim sem
hér stendur að Laugarvatnsmótið skuli
þannig m. a. hafa orðið hvati að þeirri
myndarlegu uppbyggingu sem nú hefur
ræst með Mosfellsbæingum og Mosfells-
sveitungum. Ungmennafélagar um allt
land færa ykkur heillaóskir, virðingu
sína og þökk. Þannig eru Landsmótin
og þannig mun fjöldi hugsjónamanna
fara héðan heim af þessu 20. Landsmóti
UMFI með áform um að halda upp-
byggingunni áfram. Ég skora á æsku
íslands að láta ekki fánann falla. I dag
eru möguleikarnir svo miklir og í dag er
aftur fínt að eiga hugsjónir og berjast
fyrir þeim.
Trúin á landið og mátt sinn
Frumherjarnir, aldamótakynslóðin
margnefnda eiga virðingu okkar og þökk,
þeir gáfu tóninn sem var af þjóðlegum
toga og þrá eftir sjálfstæði þjóðarinnar
og bættum hag. Félagsskapur okkar
sem í öndverðu setti sér þau markmið að
vinna að ræktun lands og lýðs undir
kjörorðunum, Islandi allt!, hefur enn
miklu hlutverki að gegna með íslenskri
þjóð.
Það er rangtúlkun sem sumir halda frant
að í þessum markmiðum okkar felist
einhver þjóðremba. Þjóðhollusta erþað
miklu fremur sem kemur svo víða fram
í öllu okkar starfi. Við erum stolt af því
að geta alið með æskulýðnum trú á land
sitt og mátt sinnar eigin persónu til þess
að geta látið gott af sér leiða. 1 leik og
starfi höfum við kosið að auka fjöl-
breytnina frá ári til árs og á þessari
uppskeruhátíð sem hér er að hefjast í
Mosfellsbæ munum við sanna slfkt fyrir
alþjóð.
Ævintýraleg er sú framþróun sem átt
hefur sér stað í allri uppbyggingu á að-
stöðu til æskulýðs- og íþróttastarfs í
landi voru á tiltölulega fáum árum. Það
væri megnasta vanþakklæti að halda
öðru fram.
En mitt í allri velgengninni leynast hætt-
ur ekki síst fyrir nýgræðinginn, æsku-
fólkið, þar af leiðir að starf ungmennafél-
aganna með allri sinni fjölbreytni og
möguleikum til holls lífernis er besta og
næstum eina vörnin til þess að hann fái
að þroskast og dafna og ná þeim aldri að
bera sem bestan ávöxt íslenskri þjóð til
heilla og framfara.
I áramótaávarpi sínu hvatti forseti Is-
lands til átaks í ræktunarmálum í anda
okkar hreyfingar. Við vitum öll að þar
fylgir hugur máli og vel sé henni að
minnast þessa. í ár er líka sérstakt átak
í gangi til eflingar skógrækt í landinu,
sem við vonandi tökum öll þátt í með
einum eða öðrum hætti. Ataksár eru
góð ár út af fyrir sig, en því aðeins að þau
virki sem hleðslutæki og aflgjafi til
frekari átaka um ókomna tíð.
Ungmennafélagar um land allt munu í
Skinfaxi
7