Skinfaxi - 01.08.1990, Blaðsíða 11
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Á LANDSMÓTI
Jón Birgir og Ólafur Guðmundssynir HSK
Gengur sigur í langstökki
í erfðir?
Bræðurnir Jón Birgir og Olafur Guð-
mundssynir háðu mikla baráttu í lang-
stökkinu og hafði sá fyrrnefndi betur.
Fróðlegt er að vita h versu mörg verðlaun
hafa fallið í skaut ættarinnar. Faðir
þeirra Guðmundur Kr. Jónsson og Sig-
urður bróðir hans hafa t. d. báðir sigrað
í þessari grein á Landsmótum UMFI.
Hástökkið slakt- stöngin betri
Árangurí hástökkinu varslakari en oftast
áður og vafalaust hefur veðrið átt sinn
þátt í því. Sigurvegari varð Gunnlaugur
Grettisson núverandi Islandsmethafi en
hann er einn af þessum nýju félögum af
höfuðborgarsvæðinu. UnnarVilhjálms-
son, sem á besta afrekið í þessari grein á
Landsmóti, 2,12 m, varð annar.
Fyrstu menn í stangarstökkinu eiga það
sameiginlegt að hafa æft þessa grein í
Reykjavíkog keppt til skamms tímafyr-
ir félög af því svæði. Raunarer staðreynd
að aðstaða fyrir þessa fögru íþrótt er
engin úti á landi. Ekki er langt síðan
Kjalnesingar ogSnæfellingareinokuðu
þessa grein, en þeirra hlutur var heldur
rýr. Þaðer illabúið að stangarstökkinu
og sitthvað verður að gera til þess að
lyfta þessari grein til vegs og virðingar
á ný.
Sterku HSK-bræðurnir
Bræðurnir sterku, Pétur og Andrés Guð-
mundssynir, unnu tvöfalt í kúluvarpinu
og Eggert Bogason vann Véstein Haf-
steinsson óvænt í kringlukastinu. Sig-
urður Matthíasson vann spjótkastið í
fjarveru Einars Vilhjálmssonar sem kast-
aði lengst í undankeppninni. Ymsum
fannst Einar sýna Landsmótinu óvirð-
ingu með því að mæta ekki í úrslita-
keppnina. Góður árangur Þórarins
Hannessonar í spjótkastinu vakti athygli
undirritaðs. Að sögn gat hann ekki æft
hástökkið vegna meiðsla en hóf þess í
stað að æfa spjótkastið með góðunt ár-
angri.
Guörún Arnardóttir UMSK
Rauður stormsveipur
Guðrún Arnardóttir, hinn rauðhærði
storm s veipur þeirra Kjalnesinga, sigraði
í 100 og 200 m hlaupum, 100 m grind og
varð stigahæsta konan. Hin bráðefnilega
Sunna Gestsdóttir frá Blönduósi veitti
henni harða keppni. Þar er á ferðinni eitt
mesta efni sem komið hefur fram á sjón-
arsviðið um hríð. Unnur Stefánsdóttir
sýndi ótrúlega keppnishörku í 400 m
hlaupinu, en Ágústa Pálsdóttir HSÞ var
skammt á eftir. Þuríður Ingvarsdóttir
HSK hefði örugglega veitt þeim harða
keppni ef hún hefði lent í sama riðli, en
hún hljóp keppnislaust.
Skemmtilegt einvígi
Fríða Rún Þórðardóttir var sterkust á
endasprettinum í 800 m hlaupinu og
háði skemmtilegt einvígi við Margréti
Brynjólfsdóttur í 1500 m hlaupinu. Sú
síðarnefnda vann á vel útfærðu hlaupi
og setti Landsmótsmet. Töldu ýntsir
sjónvarpsáhorfendur að þetta hefði verið
ein skemmtilegastagrein Landsmótsins.
Margrét sigraði síðar nteð yfirburðum í
3000 m hlaupinu.
Glæsilegt iandsmótsmet
Þórdísar
Þórdís Gísladóttir setti glæsilegt lands-
mótsmet í hástökkinu og háði einvígi
við Birgittu Guðjónsdóttur í langstökk-
inu og hafði betur. Hún varð að gera sér
að góðu að horfa á eftir Guðrúnar Ainar-
dóttur í grindahlaupinu, en með sigri í
Þórdís Gfsladóttir HSK
þeirri grein hefði hún orðið stigahæst
kvenna.
Góður tími í boðhlaupum
Tíminn í styttra boðhlaupinu var góður
hjá fyrstu sveitum, en UMSE- sveitin
skaust fyrst yfir marklínuna. HSK-sveit-
in hafði aftur á móti nokkra yfirburði í
1000 m boðhlaupinu.
íris kom á óvart
Urslit í kastgreinum urðu nokkuð á annan
veg en spáð hafði verið.
Guðbjörg Gylfadóttir var fjarri, þar sem
hún ber sitt fyrsta bam undir belti, og
Iris Grönfeldt mætti sterkari til leiks en
von var á. Vann hún kúluvarpið og
spjótkastið með nokkrum yfirburðum
og háði skemmtilega keppni við Guð-
rúnu Ingólfsdóttur í kringlukastinu. I
þeirri grein var árangur fyrstu kvenna
ágætur. I undankeppninni íspjótkastinu
köstuðu þrjár stúlkur yfir 40 m, en í úr-
slitum var vindur mjög óhagstæður.
Urðu því flest köstin ógild. Birgitta
Guðjónsdóttirvarðt. d. aðsætaþeimör-
lögum að verða úr leik, en hún átti annað
lengsta kastið í undankeppninni. Mjög
umdeilanlegt verður að telja að dæma
annað kast Birgittu ógilt.
Hvernig stóðst
landsmótsspáin?
Þegar litiðer yfir landsmótsspá Sigurðar
Péturs Sigmundssonar kemur í Ijós að
hann giskaði á rétt úrslit í eftirtöldum
greinum: 1500 m hlaupi karla, 4x 100 m
boðhlaupi karla, 1000 m boðhlaupi karla
og stangarstökki.
I kvennagreinum hitti hann á rétt í 1500
m hlaupi kvenna, 100 m grind og 4x 100
m boðhlaupi.
Að sjálfsögðu var spáin gerð til gamans
sex vikum fyrir Landsmót og margt get-
ur breyst á skemmri tíma.
Skinfaxi