Skinfaxi - 01.08.1990, Side 20
V I Ð T A L I Ð
Pétur Guðmundsson kúluvarpari í barns-
burðarleyfi, er hann búinn að kasta?
Aðstaða íslenskra afreksíþróttamanna er mun lakari en aðstaða
afreksíþróttamanna á hinum Norðurlöndum. Hvers vegna?
Hafa Islendingar engan metnað fyrir hönd sinna manna? Gera
þeir sér ekki grein fyrir mikilvægi afreksíþrótta? Er
afreksíþróttamönnum mismunað þegar styrkir er ákveðnir?
Islenskir afreksíþróttamenn búa við mun verri aðstöðu en
erlendir. Þeir stunda oft fulla vinnu, æfa á kvöldin og hafa
Pétur meö konu sinni Elísabetu ásamt börnunum, Karen Ósk, Pálma og því
yngsta Lindu Björk
lítinn tímatil þess að vera með tjölskyldu sinni. Afreksíþróttir
geta verkað sem hvati á mjög stóran hóp manna til þess að ná
lengra, þær geta verið ungu kynslóðinni góð fyrirmynd, auk
þess sem afreksíþróttamenn kynna landið okkar sjálfkrafa.
Heyrum hvað afreksmaðurinn Pétur Guðmundsson hefur að
segja um líf og starf kúluvarparans, sem hefur á síðastliðnum
fjórum árum bætt sig um 3,88 metra.
Pétur Guðmundsson, kúluvarpari, trésmiður og lög-
regluþjónn, er Reykvíkingur að uppruna og lék knatt-
spyrnu með Fylki. Hann fluttistunguríÁrnessýsluna
og gerðist félagi í Ungmennafélaginu Samhygð í Gaulverja-
bæjarhreppi. „Mér fannst sárt að menn skyldu ekki spila fót-
bolta í sveitinni, en frjálsíþróttastarfið var mikið og einnig
blak. Egvarorðinn 14 ára þegar ég heillaðist af kúluvarpinu.
Fyrsta mótið sem ég keppti á var mót milli Samhygðar og
Vöku, og þar kastaði ég 8,50 metra. Eg keppti í öllum grein-
um, en var ekki farinn að æfa kúlu. Eftir þetta mót tók ég kúlu
með mér heim og æfði mig á hlaðinu heima. Tveimur mánuð-
um seinna keppti ég svo á innanfélagsmóti Samhygðar og
kastaði 11,27 metra,” segir Pétur þegar ég reyni að rekja úr
honum garnirnar um kúluvarpsferilinn.
Og þarmeðvarkúluvarpsferill PétursGuðmundssonarhafinn.
Stangarstökk yfir í kúluvarp
„Það má segja að ég hafi fengið frjálsíþróttalegt uppeldi í
HSK”, segir Pétur. En Pétur reyndi ekki aðeins við kúluna og
fyrst þegar hann tók þátt í Landsmóti UMFI keppti hann í
stangarstökki.
„Ég var 14 ára þegar ég tók fyrst þátt í Landsmóti UMFÍ. Það
var mótið á Selfossi 1978, en þar keppti ég í stangarstökki og
varð í 6. sæti, stökk 3,40 metra. 15 ára gamall þræddi ég öll
mót innan HSK og nældi mér í HSK metin í kúlunni. Og 30.
desember 1978 var haldið mót fyrir mig, í snjókomu og slag-
viðri, svo ég gæti reynt við Skarphéðinsmetið hans Oskars
Reykdal. Það tókst, ég kastaði 13,01 mog varþáhálfum metra
frá íslandsmetinu. En upp úrþessu kom stöðnunartímabil hjá
mér, ég fór að vinna og keypti mér bíl. Ég varð að hafa bíl til
þess að komast á böllin,” segir Pétur.
Bætti sig heima á hlaöi
„Áhuginn fór að glæðast aftur eftir Landsmótið á Akureyri
1981, fyrsta stórmót mitt í kúluvarpi. Þar bætti ég mig, fór í
fyrsta skipti yfir 14 m, kastaði 14,40 m og varð í þriðja sæti.
Með þessu kasti vann ég mér rétt til þess að keppa á Norður-
landameistaramóti unglinga sem haldið var í Finnlandi og var
það fyrsta utanlandsferðin mín. Ég náði nú ekki að bæta mig
í Finnlandi, en þegar ég kom heim þá kemur nágranni minn og
mikill íþróttamaður af næsta bæ, Eyjólfur Pálmarsson og fer
aðsýnamérnýjakasttækni semersnúningstækni. Þessitækni
var þá algeng í Bandaríkjunum og hafði bandaríski kúluvarp-
arinn Brian Oldfield náð að kasta kúlunni 22,86 metra. Áhuginn
var svo mikill að ég var búinn að steypa hring við hlöðuna
heima. Ég fór auðvitað strax að æfa nýja stílinn og bætti mig
á fyrstu æfingu, þarna heima á hlaði. Ég varð alveg trylltur og
fór að kasta tvisvar, þrisvar á dag og kastaði yfir 16 metra
heima við hlöðu án þess að fá nokkratilsögn. Mérfinnstég búa
vel að þeirri tækni sem ég tileinkaði mér þarna svo ungur. Það
má segja að bakstíllinn sé öruggari, en með snúningsstíl er
hægt að hitta á risaköst.”
Bros sigurvegarans
Sögöu mig vonlausan
„Strax um sumarið 1982 varð ég í fyrsta skipti íslandsmeistari
íkúlu, þegarmeistaramótið varhaldiðáSelfossi. Égbætti mig
mikið, kastaðil6,17 m, allt vegna þessarar tækni sem ég var
byrjaður að nota. Eftir þetta vaknaði áhugi á því að fara út að
20
Skinfaxi