Skinfaxi - 01.08.1990, Qupperneq 24
BORÐTENNIS OG TENNIS A LANDSMÓTI
Landsbyggðin
sækir á
Síðan Bortennissamband íslands var
stofnaðl972, hafaöll meiriháttarborð-
tennismót verið haldin á Reykjavíkur-
svæðinu. Það er m. a. ástæðan fyrir því
að alla bestu íþróttamenn í þessari grein
er að finna á því svæði og minni háttar
spámenn utan af landi hætta sér ekki í
slaginn. Má segja að aðeins UMSB og
HSÞ hafi blandað sér í þá baráttu hin
síðari ár.
Keppni í borðtennis á Landsmótum
UMFI erþvínokkurs konarBorðtennis-
mót landsbyggðarinnar og kemur þá í
ljós að víða um land er að finna mjög
1 iðtæka borðtennisspilara sem ekki sjást
á öðrum mótum.
Stjarnan í Garðabæ er eina félagið, innan
UMSK og á höfðuðborgarsvæðinu, sem
leggur stund áborðtennis. Félagið hefur
á að skipa mörgum úrvals borðtennis-
spilurum og mátti því fyrirfram teljast
nokkuð öruggur sigurvegari. Búist var
við að baráttan um 2. sætið stæði milli
HSÞ og UMSB. Lið HSÞ var skipað
ungum krökkum sem allir voru að koma
beint úr æfingabúðum og keppni í Skot-
landi með unglingalandsliðinu. UMSB
hefur löngum getað státað af góðu
kvennaliði og það brást ekki heldur
núna. Sigrún Bjarnadóttir, gamalreynd
landsliðshetja UMSB, sigraði nokkuð
óvænt, Lilju Benónýsdóttur úr UMSK,
þar sem Lilja hefur verið í fremstu röð
kvenna í nokkur ár rneðan minna hefur
borið á Sigrúnu.
Urslit í kvennaflokki urðu þessi:
1. Sigrún Bjarnadóttir UMSB
2. Lilja Benónýsdóttir UMSK
3. Rakel Þorvaldsdóttir UMSB
4. Margrét Ósk Hermannsd. HSÞ
5. -6. Anna Sigurbjörnsdóttir UMSK
5.-6. Elín Þorsteinsdóttir HSÞ
7.-8. Elva Helgadóttir HSÞ
7.-8. Sigríður Haraldsdóttir UMSB
9.-12. Anna Gunnarsdóttir UMFK
9.-12. IngibjörgSigurbjörnsdóttir UIA
9,-12. Kamma Jónsdóttir HSK
9.-12. Vigdís Guðjónsdóttir HSK
13. Eydís Eiríksdóttir HSK
I karlaflokki var jafnvel búist við þre-
földum sigri UMSK. En Stefáni Gunn-
arssyni HSÞ og Bjarna Kristjánssyni
UMFK tókst að koma í veg fyrir það.
Frá borðtenniskeppni á Landsmótinu í Mosfellsbæ
Bjarni, sem spilaði eftirminnilegan
úrslitaleik við Albrecht Ehmann úr
UMSK á síðasta Landsmóti, varð nú að
láta sé nægja 4. sætið eftir tap við Stefán.
Sá leikur var á vissan hátt táknrænn,
Bjarni sem búinn er að vera í fremstu
röðáfyrri Landsmótum, áleiðinni niður,
Stefán á leiðinni upp.
Urslit urðu þessi í karlaflokki:
1. Bjarni Þ. Bjarnason UMSK
2. Benedikt Halldórsson UMSK
3. Stefán Gunnarsson HSÞ
4. Bjami Kristjánsson UMFK
5. -6. Gísli Oddgeirsson HSÞ
5.-6. Sveinn Óli Pálmason UMSK
7.-8. Árni Helgason HSK
7.-8. Hörður Birgisson UMSB
9.-12. Brynjólfur Sigurðsson UÍA
9.-12. Ingvi Stefánsson UMSE
9.-12. Ómar Ingvarsson UMFK
9.-12. Rúnar Hjartarson HSK
13.-16. Davíð Búason UMSB
13.-16. Einar K. Birgisson UMSB
Nýliðarnir sigr-
uöu glæsilega
Tennis er upprennandi íþrótt hér á landi
og var nú í fyrsta sinn keppt í henni á
Landsmóti ungmennafélaga. Tennis-
keppnin taldist til svokallaðra sýningar-
greina mótsins. Þrjú félög sendu kepp-
endur, Ungmennafélagið Fjölnir í Graf-
arvogi, UMSK og UÍÓ.
Vegna roks og rigningar var keppnin
flutt frá Varmá í íþróttahús Fjölnis að
Viðarhöfða. 1 hverri sveit varein kona,
einn karl, einn piltur og ein stúlka.
Keppni var þannig háttað að hver leikur
13,-16. Hafliði Kristjánsson UMFK
13.-16. Ægir Jóhannsson HSÞ
17.-22. Arnar Sigurbjörnsson UIA
17.-22. Benedikt Benedikts. UMSE
17.-22. Eiríkur Ragnarsson UGS
17.-22. Garðar Sigurgeirsson UGS
17.-22. Hákon Sigmundsson UMSE
17.-22. Stefán Guðmundsson HSK
Það leyndi sér ekki á þessu móti að víða
er að finna spræka borðtennisspilara.
Nokkrirstrákarvöktu athygli fyrirmikla
baráttu, t. d. Eiríkur og Garðar úr Umf.
Geisla á Súðavík, Rúnar úr HSK og
IngviúrUMSE. Allaþessastrákaskortir
hins vegar meiri reynslu. Er ástæða til
að hvetja þá og aðra til að fara að mæta
á fleiri mót og láta sér ekki nægja að
keppa á þriggja ára fresti. Gerist það
ekki er óhætt að spá strax fyrir um úrslit
ánæstaLandsmóti: 1. UMSK, 2. HSÞ,
3.UMSB.
stóð í þrjátíu mínútur. Unnar lotur voru
svo reiknaðar sarnan og bar Umf. Fjölnir
sigur úr býtum með 43 unnar lotur, en
sigurliðið skipuðu: George Marshall,
Guðríður Þorsteinsdótlir, Teitur Mars-
hall og Hrafnhildur Hannesdóttir.
UMSK varð í öðru sæti með 32 lotur og
UIÓ rak lestina með 17 unnar lotur.
Stórskemmtilegri tennissýningu stjórn-
aði Einar Sigurgeirsson landsliðsþjálf-
ari, en þátttakendur voru efnilegustu
unglingar landsins í tennis. Margir
tennisáhugamenn lítabjörtum augum til
næsta Landsmóts og hafa áhuga á að
gera tennis að keppnisgrein á Laugar-
vatni.
Björn Ingólfsson, Grenivík.
24
Skinfaxi