Skinfaxi - 01.08.1990, Qupperneq 29
BLAK Á LANDSMÓTI
Þakið ætlaði
að rifna af
húsinu
Er Landsmót í Mosfellsbæ var í nánd
virtist þátttaka í blakíþróttinni ætla að
verða mikil og á tímabili vom 10 sam-
bönd að athuga möguleika til keppni.
Áður hafa mest sjö sambönd sent lið til
keppni og er upp var staðið mættu sjö lið
til leiks sem dregin voru saman í tvo
riðla:
A-riðill: HSK, HSÞ, UNÞ.
B-riðill: UMSK, UÍA, UMSE, UMFK.
HSK, UMSK og UÍA höfðu 1. deildar
liðum á að skipa og voru fyrirfram talin
vera með sterkustu liðin. HSK hafði
heppnina með sér og lenti í léttum riðli,
en UÍA og UMSK þurftu að bítast um I.
sætið í sínum riðli.
Framkvæmd mótsins gekk áfallalaust
og íþróttalega séð var mótið vel heppn-
að.
Það fyrsta sem kom á óvart í keppninni
var að HSK lenti í verulegum erfiðleik-
um með UNÞ. Norður-Þingeyingar
koniu sterkir til leiks og börðust vel.
Skarphéðinsmenn máttu þakka fyrir að
merja sigur. Þetta var eini leikurinn í A-
riðli sem var verulega spennandi. HSK
vann HSÞ og UNÞ vann nágranna sína
í HSÞ í góðum leik.
í B-riðli fór allt eftir bókinni til að byrja
með. 1. deildar liðin lögðu Eyfirðinga
og Suðurnesjamenn að velli. Leikur
UMSK og UÍA var því hreinn úrslita-
Blakliö HSK
Andrés Guðmundsson HSK til alls vts
leikur um 1. sætið í riðlinum. Allir
bjuggust við hörku viðureign og sú varð
líka raunin. UMSK vann fyrstu hrinu
nokkuð sannfærandi, þrátt fyrir góða
baráttu UÍA-manna. I byrjun annarrar
hrinu meiddist einn leikmaður hjá
UMSK og varð hann að fara af velli.
Eftir það réð UIA lögum og lofum í
hrinunni og unnu hana örugglega. Við
þetta óx austanmönnum ásmegin og
börðustþeireinsogljóníúrslitahrinunni.
Eftir mikla baráttu stóðu þeir uppi sem
sigurvegarar og höfðu áunnið sér rétt til
aðleikaúrslitaleikinnum l.sætið. Mikil
fagnaðarlæti urðu í herbúðum UÍA-
manna eftir þennan frækna sigur.
1 úrslitakeppninni vann HSÞ sigur á
UMSE og hlaut 5. sætið. UMSK átti
ekki í erfiðleikum með UNÞ, en leikurinn
var vel leikinn af beggja hálfu. Eins og
á fyrri Landsmótum UMFI var úrslita-
leikurinn um 1. sætið hápunktur keppn-
innar. íþróttahúsiðvartroðfulltogmikil
stemning meðal áhangenda liðanna.
Leikurinn var líka æsispennandi. HSK
vann fyrstu hrinuna eftir mikla baráttu.
UIA var þó ekki á því að gefast upp.
Liðið kom ákveðið til leiks og lék af
miklum krafti í annarri hrinu. HSK-
menn áttu greinilega ekki von á þessu og
UIA vann hrinuna sannfærandi. Héldu
nú margir að þeir væru komnir í þann
ham sem þeir sýna stundum og geta þá
unnið hvaða lið sem er hér á landi. En
lukkuhjólið snérist ekki austanmönnum
meira í hag þrátt fyrir góð tilþrif og náðu
ekki að halda dampi í þriðju og fjórðu
hrinu. Þeir gerðu mörg mistök og taug-
arnar voru greinileg ekki í lagi.
HSK-menn sýndu aftur á móti styrk
sinn og þrautseigju sem oft áður og unnu
leikinn 3 - 1.
Endanleg úrslit urðu því sem hér
segir:
1. HSK
2. UÍA
3. UMSK
4. UNÞ
5. HSÞ
6. UMSE
7. UMFK
Albert H.N. Valdimarsson
sérgreinastjóri í blaki.
KARATE Á LANDSMÓTI
Úrslit
Kumite, karlar 17 ára og eldri:
1. Sölvi Rafnsson HSK
2. Helgi Jóhannesson UMSK
3. Jón Snorrason UMSK
4. Signtundur Rafnsson HSK
5.-6. Sævar Sveinsson UMSK
5.-6. Róbert Axelsson UMSK
Kata, karlar 17 ára og eldri: Stig
1. Sölvi Ral'nsson HSK 30.5
2. Helgi Jóhannesson UMSK 30.5
3. Sævar Sveinsson UMSK 28.9
4. Róbert Axelsson UMSK 28.9
Kata, stúlknaflokkur Stig Kuniite, 13 -16 ára drengir
1. Kristfn Einarsdóttir UMSK 15.1 1. Árni Jónsson UMSK
2. Oddbjörg Jónsdóttir UMSK 14.5 2. Rfkharður Róbertsson UMSK
3. Berglind Kristinsdóttir UMSK 14.2 3. Pálmar Sigurðsson UMSK
4. Vilborg Jónsdóttir UMSK 14.1 4. Einar IngintundarsonUMSK
5. Kristín Valdimarsdóttir UMSK 14.0
6. Elísabet Stefánsdóttir UMSK 13.8 Kata, 12 ára og yngri Stig
1. Vigfús Mortens UMSK 14.5
Kata, 13 -16 ára drengir Stig 2. Auðunn Helgason UMSK 14.3
1. Þorleifur Jónsson UMSK 15.0 3. Gunnar Gunnarsson UMSK 14.3
2. Árni Jónsson UMSK 14.9 4. Jónas P. Ólafsson UMSK 14.1
3. Eiríkur Steinsson UMSK 14.5 5. Stefán Agnarsson UMSK 14.1
4. Pálmar Sigurðsson UMSK 14.3 6. Birkir Jónsson HSK 13.7
7. Svanur Daníelsson UMSK 13.0
Skinfaxi
29